Hægt er að rekja 150 tilfelli til neyslu á þessum eggjum
Matvælastofnun varar við neyslu á súkkulaðieggjunum Kinder Surprise, vegna gruns um salmonellu. Hægt er að rekja 150 tilfelli til neyslu á þessum eggjum og hafa þau komið upp í tíu Evrópulöndum. Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) og Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) hafa gefið út skjal um málið. Matvælastofnun fær upplýsingar um dreifingu Kinder eggja í gegnum Rasff hraðviðvörunarkerfi Evrópu.
Upplýsingar um vörurnar:
Framleiðandi: Ferrero
Framleiðsluland: Belgía
Best fyrir: Allar dagsetningar
Vöruheiti: Kinder Surprise, 20g
Nettómagn: 20g
Strikamerki: 40084107
Vöruheiti: Kinder Surprise. 3x20g
Nettómagn: 3x20g
Strikamerki: 8000500026731
Vöruheiti: Kinder Surprise Maxi, 100g (Easter)
Nettómagn: 100g
Strikamerki: 4008400231327
Vöruheiti: Kinder Surprise, 100g (Christmas)
Nettómagn: 100g
Strikamerki: 4008400230726
Aðföng hefur innkallað vöru (sjá fyrri frétt) sem það hefur dreift, en útvíkkað innköllunina með nýrri fréttatilkynningu dags. 8. apríl. Aðföng hefur upplýst Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um málið. Innköllun Aðfanga á við um allar ofangreindar vörur. Dreifing: Verslanir Bónus, Hagkaups, Olís og Skagfirðingabúð.
ÓJK-ÍSAM hefur innkallað vöru sem það hefur dreift, sent út fréttatilkynningu og upplýst Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um málið.
Innköllun ÍSAM á við eftirfarandi vöru:
Kinder Surprise, 20g
Dreifing: N1, Nettó verslanir, Kjörbúðin, Fjarðarkaup, Extra verslanir, 10-11 verslanir, Orkan, Hraðbúðin Hellissandi, Víkurskáli, Verslunin Hlíðarkaup, Skaftárskáli, Kaupfélag VHúnvetninga, Gvendarkjör, Verslunin Kassinn, Verslunin Urð, Söluskáli Ó.K, Vegamót, Kaupfélag Breiðdalsv.
Fríhöfnin í Keflavík hefur einnig tekið úr sölu öll Kinder egg.
Krónan hefur innkallað vörur úr sínum verslunum, sent út fréttatilkynningu og upplýst Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um málið.
Innköllun Krónunnar á við eftirfarandi vörur:
Kinder Surprise, 20g
Kinder Surprise Maxi, 100g
Dreifing: Allar verslanir Krónunnar.