Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aukist um rúmt prósentustig frá í byrjun mánaðarins og mælist nú 21,3%. Samfylkingin mældist með 13,9% fylgi, sem er nær óbreytt frá síðustu könnun. Þá minnkaði fylgi Pírata um rúmlega þrjú og hálft prósentustig en fylgi Miðflokksins hækkaði um rúmlega tvö og hálft prósentustig frá síðustu mælingu MMR.
Stuðningur við ríkisstjórnina var nær óbreyttur frá síðustu könnun og mældist nú 40,9% en var 40,4% í síðustu mælingu.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,9% og mældist 14,1% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,2% og mældist 13,4% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 11,8% og mældist 9,2% í síðustu könnnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,6% og mældist 9,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 9,8% og mældist 13,4% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,4% og mældist 9,2% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,4% og mældist 5,1% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 3,2% og mældist 4,2% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,4% samanlagt.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 978 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 14. til 16. maí 2019