Drengur undir 18 ára aldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Hann veittist að manni í miðborg Reykjavíkur í júní í fyrra, skar með hnífi í andlit mannsins og stakk hann í kvið.
Í ákæru sem ríkisútvarpið fjallar um á hendur piltinum,, sem var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, kemur fram að þolandinn hafi hlotið skurðsár á andliti og 3,5 sentimetra breiða stungu í kvið. Stunguáverkinn var djúpur og garnahengi og hluti af garnalykkju féllu út.
Fjarlægja varð hluta af garnahenginu í bráðaaðgerð. Þolandinn krefst 2,5 milljóna króna í miskabætur að viðbættum vöxtum.
Til vara er pilturinn ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.
Umræða