• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 26. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hafnarfjarðarbær fær rekstrarheimild fyrir tólf nýjum dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabilun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. júlí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Heilbrigðisráðherra hefur veitt Hafnarfjarðarbæ rekstrarheimild fyrir tólf nýjum dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabilun. Hafnarfjarðarbær mun útvega húsnæði fyrir reksturinn og ábyrgjast að þjónusta við notendur verði veitt á faglegum grunni í samræmi við þarfir fólks með alzheimer og aðra minnissjúkdóma. Leitað verður eftir samvinnu við Alzheimersamtökin sem faglegum bakhjarli þjónustunnar. Ráðherra tilkynnti um ákvörðun sína við opnun nýja hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði síðdegis í dag.

Svandís Svavarsdóttir

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist afar ánægð með að hafa getað orðið við ósk bæjarfélagsins um að auka þessa mikilvægu þjónustu, því þörfin sé brýn: „Bætt heilbrigðisþjónusta við aldraða samhliða stórsókn í fjölgun hjúkrunar- og dagdvalarrýma er áherslumál sem ég hef sett í sérstakan forgang. Vinna við stefnumótun í málefnum fólks með heilabilun er komin vel á veg og það er alveg ljóst að fjölgun sérhæfðra dagdvalarrýma fyrir fólk með alzheimer og aðra minnissjúkdóma felur í sér mikla bót fyrir þennan sjúklingahóp og aðstandendur þeirra“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Í Hafnarfirði hefur verið rekin sértæk dagdvöl fyrir fólk með heilabilun frá árinu 2006 í Drafnarhúsi. Hafnarfjararbær hefur lagt rekstrinum til húsnæði en reksturinn hefur verið á hendi Alzheimersamtakanna. „Við höfum lengi talað fyrir aukinni þjónustu og fögnum því mjög ákvörðun ráðuneytisins. Í Drafnarhúsi eru í dag 22 einstaklingar í sérhæfðri þjálfun og tómstund sem er þessum hópi og aðstandendum þeirra afar mikilvæg. Nú verður hægt að þjónusta 12 einstaklinga til viðbótar og vonandi enn fleiri þegar fram líða stundir. Mikill skortur er á dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabilun og brýn þörf á aukinni þjónustu sem eykur lífsgæði einstaklinganna“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Drög að stefnu í málefnum einstaklinga með heilabilun voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda 24. júní síðastliðinn og rennur umsagnarfrestur út 1. september næstkomandi.
Drög að stefnu í málefnum einstaklinga með heilabilun í samráðsgáttinni

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Ætlum við líka að hamra á frambjóðendum sem hafa farið inn á strippstaði?“

    Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Bjarni Benediktsson ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?