Með ákvörðun Fiskistofu, var skipið Bergvík GK-22 (2617) svipt leyfi til veiða í atvinnuskyni í tvær vikur vegna brottkasts.
Í ákvörðuninni kemur fram að við eftirlit Fiskistofu þann 28. apríl 2021 hafi veiðieftirlitsmenn orðið áskynja um að áhöfn skipsins væri að kasta afla fyrir borð. Við eftirlitið var notast við fjarstýrt ómannað flugfar (dróna) með áfastri myndavél og var upptökubúnaðurinn virkjaður eftir að eftirlitsmenn urðu varir við brottkast.
Ákvörðunin byggir á því að áhöfn skipsins hafi kastað fyrir borð a.m.k. 72 fiskum á um 40 mínútna tímabili, sem komið höfðu í veiðarfæri skipsins og með því brotið gegn 2. mgr. 2. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Ákvæðið gerir skylt að hirða og landa öllum afla sem kemur í veiðarfæri fiskiskipa.
https://gamli.frettatiminn.is/20/02/2021/thusundum-tonna-af-fiski-upp-a-milljarda-hent-i-sjoinn/