• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

FRAMLEIÐNI EÐA ÞJÓNUSTA – NEYTENDUR EÐA SJÚKLINGAR

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. ágúst 2021
in Ferðaþjónusta, Innlent
A A
0

Sjúkrarýmum hefur fækkað taktfast frá 2007 til 2019

Drífa Snædal formaður ASÍ skrifar harðorða pistil um heilbrigðiskerfið á Íslandi

Enn á ný ratar orðfæri markaðarins inn í umræður um heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Umræða um „framleiðni“ í heilbrigðisþjónustu minnir óneitanlega á þá tíma þegar stjórnmálamenn töluðu fyrir því að efla „kostnaðarvitund neytenda” og vísuðu þar til sjúklinga og annarra skjólstæðinga okkar sameiginlegu kerfa; veika og gamla fólksins sem átti að gera ábyrgt fyrir einstaka útgjöldum.

Ef við ætlum að setja orðfæri markaðarins á heilbrigðismál þá litar það viðhorf, stefnumótun og að lokum ákvarðanir. Það er til dæmis ekkert mál að auka „framleiðni“ í heilbrigðisþjónustu og við þekkjum það frá markaðsdrifnum kerfum sem jafnframt eru þau dýrustu í heimi. Þar er til dæmis hægt að senda fólk í röntgen frá toppi til táar vegna magakveisu, það myndi auka „framleiðni“. Svo er hægt framleiða meira með því að bjóða öldruðum á hjúkrunarheimilum upp á bað oftar í viku og þá gegn rausnarlegri greiðslu. Eflaust er framleiðnin efst í huga á hjúkrunarheimilinu þar sem nú er farið að rukka fólk fyrir fylgd í klippingu eða fótsnyrtingu, sem þó er innan sömu byggingar.

Með þessu markaðsorðfæri er sjónum líka beint frá því sem liggur í augum uppi: fjárframlög til heilbrigðismála hafa ekki aukist í takt við fjölgun sjúklinga. Okkur hefur fjölgað, fólk lifir lengur og þarf aukna þjónustu, auk þess sem álag vegna stóraukins fjölda ferðamanna síðustu ár hefur sett sitt mark á kerfin okkar.

Tölur Hagstofunnar sýna okkur að sjúkrarýmum miðað við íbúafjölda hér á landi hefur fækkað taktfast frá 2007 til 2019; úr 335 rýmum á hverja 100 þúsund íbúa í 227 rými. Hjúkrunarrýmum og endurhæfingarýmum hefur sömuleiðis fækkað verulega á sama tímabili ef miðað er við fólksfjölda. Og samhliða hefur verið dregið svo úr heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni að það er engin leið að skilja það öðruvísi en sem hreina mismunun eftir búsetu. Þegar stjórnmálamenn tala um heilbrigðiskerfið sem botnlausa hít er vert að hafa þetta í huga.

Það er ljóst að heilbrigðismálin eru eitt af stóru kosningamálunum sem tekist verður á um í aðdraganda kosninganna. Þar mun öllu máli skipta hvort við ræðum þau út frá markaðslegu sjónarhorni eða út frá heilbrigði og þjónustu fólks af holdi og blóði. Mörg verðum við veik á lífsleiðinni og þurfum á þjónustunni að halda og velflest verðum við einhvern tímann öldruð. Höfum það hugfast nú þegar við tökum stefnumarkandi ákvarðanir til framtíðar.

Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    88 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?