• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Auðvelda fyrstu kaup – nýtt úrræði fyrir unga og tekjulága

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. september 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamála -ráðherra, átti í gær fund með Kevin Stuart

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra, átti í gær fund með Kevin Stuart, húsnæðismálaráðherra Skotlands. Hann sat sömuleiðis vinnufund með skoskum embættismönnum þar sem húsnæðismál voru rædd með sérstakri áherslu á stuðning við ungt fólk og tekjulága við að komast inn á fasteignamarkaðinn. Í för með ráðherra voru fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Íbúðalánasjóði.
Markmið fundanna var að kynnast því með hvaða hætti stjórnvöld í Skotlandi hafa innleitt og unnið með svokölluð hlutdeildarlán sem hafa hjálpað íbúðakaupendum að festa kaup á sinni fyrstu eign. Bæði Englendingar og Skotar hafa valið þann kost að veita hlutdeildarlán (Equity Loans) til þess að styðja við tekjulægri íbúðakaupendur og stuðla að hagkvæmum nýbyggingum þar sem þess er þörf.
Þegar kemur að stöðugleika á húsnæðismarkaði eru þrjár stoðir sem skipta mestu máli; kaupendur, byggingaraðilar og lánveitendur. Hlutverk stjórnvalda er að tryggja að skipulag og umgjörð húsnæðismarkaðarins sé með þeim hætti að það ríki stöðugleiki, að byggingaraðilar geti tryggt jafnt og viðeigandi framboð, að almenningur hafi aðgang að lánsfé og að viðkvæmustu hópar samfélagsins og dreifðar byggðir njóti sérstaks stuðnings. Hlutdeildarlánin eru eitt púsl í þessa heildarmynd.
Í yfirlýsingu um stuðning stjórnvalda við lífskjarasamninga kemur fram að unnið verði með aðilum vinnumarkaðarins að því að finna skynsamlegar leiðir og útfærslur til að auðvelda ungu fólki fasteignakaup. Sérstaklega var samið um að nýta mætti 3,5% af lífeyrissparnaði til innborgunar við fasteignakaup (svissneska leiðin). Samhliða þessu var lagt til að boðið yrði upp á svokölluð hlutdeildarlán. Slík lán bera lægri vexti og afborganir fyrstu árin og gera þannig tekjulágum kleift að komast yfir útborgunarþröskuldinn. Lánin verða síðan endurgreidd þegar eigandi selur íbúð eða greiðir lánið upp.
„Eitt af meginmarkmiðum mínum í embætti ráðherra er að gera ungu fólki kleift að kaupa sínu fyrstu íbúð. Hlutdeildarlán eru góð og skynsamleg leið til hjálpa íbúðarkaupendum að komast yfir útborgunarþröskuldinn í upphafi. Þessi heimsókn gefur okkur færi á að dýpka skilning okkar á úrræðinu og helstu áhrifum þess. Ég bind miklar vonir við að það muni ryðja sér til rúms á íslenskum húsnæðismarkaði og hjálpa ungu fólki og tekjulágu, sem og fólki sem misst hefur húsnæði, að eignast þak yfir höfuðið,“ segir Ásmundur Einar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    148 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    94 deilingar
    Share 38 Tweet 24
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?