• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 12. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Íslensk stjórnvöld auka enn framlög til mannúðaraðstoðar á Gaza

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. nóvember 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 100 milljóna króna viðbótarframlag vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Framlagið verður veitt til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) og Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC). Ráðherra kynnti aukin framlög á fundi ríkisstjórnarinnar.

„Mannúðarástandið á Gaza fer enn versnandi og þörfin fyrir aðstoð og nauðþurftir er mikil. Við Íslendingar höldum áfram að leggja okkar af mörkum við þessar aðstæður. UNRWA er meginviðbragðsaðili Sameinuðu þjóðanna í þeirri neyð sem ríkir meðal almennra borgara og Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hefur lögsögu í Palestínu þegar kemur að því að rannsaka alþjóðaglæpi, þar á meðal stríðsglæpi,“ segir Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra. 

Með framlaginu sem tilkynnt var um í dag nema heildarframlög Íslands, vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs, 240 milljónum króna, til viðbótar við framlög til Alþjóðlega sakamáladómstólsins. Þetta er í þriðja sinn frá því átökin hófust sem íslensk stjórnvöld veita viðbótarframlag til UNRWA og í ár er Ísland meðal hæstu framlagsríkja miðað við höfðatölu.

UNRWA gegnir lykilhlutverki við að koma nauðþurftum á borð við mat og vatn inn á Gaza og dreifa þeim. Um  830 þúsund manns, eða helmingur allra vegalausra einstaklinga á svæðinu, hafa leitað skjóls í neyðarskýlum stofnunarinnar sem áður hýstu skólastarf, heilsugæslu og aðra þjónustu á hennar vegum. UNRWA er ein af samstarfsstofnunum Íslands í mannúðarmálum, en virkt innra og ytra eftirlit er með störfum og ráðstöfun fjármuna hennar líkt og annarra stofnana Sameinuðu þjóðanna, meðal annars af hálfu framlagsríkja.

Í þingsályktunartillögu sem samþykkt var af öllum flokkum á Alþingi þann 9. nóvember  síðastliðinn var kallað eftir tafarlausu vopnahléi af mannúðarástæðum á Gaza, óhindruðu aðgengi að nauðþurftum og skýr krafa gerð um að alþjóðalög séu virt. Þá voru hryðjuverk Hamas, sem kostuðu á annað þúsund manns í Ísrael lífið, fordæmd og krafa gerð um tafarlausa lausn yfir 240 gísla í haldi Hamas, en þar af eru um 30 börn.

Sama ákall hefur ítrekað komið fram í yfirlýsingum íslenskra stjórnvalda á opinberum vettvangi og á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    463 deilingar
    Share 185 Tweet 116
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Málþóf minnihlutans stöðvað

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?