Tillaga Samfylkingarinnar um hækkun vaxtabóta var samþykkt sem þýðir að þúsundir heimila sem ellegar hefðu dottið út úr kerfinu njóta stuðnings á næsta ári og greiðslurnar hækka hjá tekjulágu fólki sem ber hitann og þungann af vaxtahækkunum.
„Ég fagna þessu skrefi mjög eindregið og þeirri samstöðu sem hefur náðst í þessum sal um tillögu okkar,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, á Alþingi, þegar tillaga hans og minnihluta efnahags og viðskiptanefndar um hækkun vaxtabóta var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Þannig munu eignaskerðingarmörk vaxtabóta hækka um 50 prósent um áramótin og þúsundir heimila sem ellegar hefðu dottið út úr vaxtabótakerfinu njóta vaxtabóta.
Jóhann Páll Jóhannsson var fyrsti flutningsmaður tillögunnar en að henni stóðu jafnframt fulltrúar Pírata, Viðreisnar og Flokks fólksins í efnahags- og viðskiptanefnd. Um er að ræða eina af þeim breytingum sem lagðar voru til í kjarapakkanum sem þingflokkur Samfylkingarinnar kynntu í síðustu viku.
„Ég fagna þeirri samstöðu sem er að nást hér í þingsal um að hækka skerðingarmörk í vaxtabótakerfinu um 50% eins og við í Samfylkingunni höfum talað fyrir í haust og ríkisstjórnin ákvað svo að þyrfti að gera til að liðka fyrir viðræðum á almennum vinnumarkaði,“ sagði Jóhann Páll.
Þá var tillaga Jóhanns Páls og Guðrúnar Hafsteinsdóttur, þingmann Sjálfstæðisinsflokksins, um lækkun tolls á frönskum kartöflum úr 76% í 46% einnig samþykkt.
„Maður mýkist bara upp allur hérna upp einhvern veginn og verður hálfmeyr þegar það er verið að samþykkja hérna tillögur frá manni á færibandi,“ sagði Jóhann Páll undir lok atkvæðagreiðslu um fjárlagabandorm. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, sagði að það hefði verið freistandi að fella tillöguna um hækkun eignaskerðingarmarka vaxtabóta í ljósi þess að hún var lögð fram af stjórnarandstöðunni en hann gæti ekki leyft sér það.