Leigutorg fyrir íbúa Grindavíkur var opnað fyrir rúmri viku en þar geta þau sem sérstaklega vilja styðja við Grindvíkinga boðið eignir sínar til útleigu. Samkvæmt nýjustu tölum eru skráðar eignir á leigutorginu eru 162 og þegar hafa 44 leigusamningar farið þar í gegn.
Enn vantar þó fjölbreyttari eignir, bæði eftir gerð og staðsetningu, til að allir Grindvíkingar hafi öruggt skjól yfir jól og áramót. Skortur er á fleiri stærðar- og verðflokkum til að koma til móts við fjölbreytt samfélag Grindavíkur en t.a.m. er talsverður skortur á eignum þar sem gæludýr eru velkomin. Þau sem vilja styðja við Grindvíkinga fram yfir áramót eru hvött til að skrá eignir sínar á leigutorgið.
Umræða