Sundkappinn Már Gunnarsson er mjög ánægður með þjónustu Play í flugi sínu heim til landsins og hundurinn hans Max fékk einnig bestu þjónustu og rúmgott sæti, fremst í vélinni.
,,Í fyrsta sinn ferðuðumst ég og leiðsöguhundurinn minn Max með Play flugfélögum við heimkomu til Íslands í jólafrí. Þetta var okkar lang besta flug upplifun!
Flugfélagið tók frá okkur þrjú sæti í fyrstu röðinni, þar sem Max hafði nóg pláss til að liggja þægilega á gólfinu, án þess að trufla eða taka pláss frá öðrum farþegum. Í flugi er þessi staðsetning rólegasta svæðið um borð í vélinni, þetta hjálpar honum virkilega að halda einbeitingu/slaka á í miklu vinnuumhverfi.
Hvert sem við komum, þá mættumst við af fagmennsku og góðmennsku sem endurspeglaðist mjög í gegnum okkar ferðalag!
Af öllu hjarta, takk @playairlines fyrir að gera hlutina rétt, og vera fullkomið dæmi um flugfélag sem vill að allir geti ferðast og spilað með.
Gleðileg jól- Már og Max“