• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 23. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fallist á kröfur lögreglustjóra um gæsluvarðhald

Fimm ára fangelsi fyrir manndrápstilraun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. desember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag Halldór Loga Sigurðsson í fimm ára fangelsi fyrir stunguárás í Reykjanesbæ í júní. Hann er sakfelldur fyrir tilraun til manndráps, en hann lagði ítrekað til manns með hnífi.

Fjallað er um dóminn á vef ríkisútvarpsins og þar segir að lögregla hafi fengið tilkynningu um árásina klukkan 22.15 að kvöldi föstudagsins 20. júní. Fórnarlambið var þá með stunguáverka á hendi, hnakka og baki og var flutt með hraði á Landspítalann. Halldór Logi hafði flúið af vettvangi, en lögregla bar kennsl á hann af öryggismyndavélum. Lögregla hafði að lokum uppi á honum í heimahúsi. Þar tók kona á móti lögreglu og sagði Halldór vera að hóta henni og öðrum manni á heimilinu lífláti. Hann var síðan handtekinn án mótspyrnu að því er fram kemur í fréttinni.

,,Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald daginn eftir og hefur verið í haldi síðan. Í dómnum kemur fram að framburður hans hafi verið ruglingslegur við yfirheyrslur.

Í dómnum kemur fram að fórnarlambið hafi farið út af heimili sínu eftir að hafa heyrt hávaða fyrir utan og fundist eins og einhver væri að berja á bílskúrinn. Hann hafi ætlað að reka viðkomandi burt en séð mann með hníf og muni síðan ekki meira fyrr en árásin var yfirstaðin og hann verið allur í blóði.

Geðlæknir var dómkvaddur til að leggja mat á ástand Halldórs og kemur fram að hann hafi verið í geðrofi þegar hann framdi árásina og það hafi verið stór þáttur í því hvernig fór. Það sé vegna langvinnrar notkunar vímuefna. Hann hafi hins vegar verið sakhæfur á verknaðarstundu.

Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi og gert að greiða fórnarlambinu rúmar 3,2 milljónir króna í bætur auk sakarkostnaðar og málsvarnarlauna.“ Segir í frétt Rúv.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Aðgangi að samfélagsmiðlum á Íslandi jafnvel lokað

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Hreinsun og uppsagnir í Mennta- og barnamálaráðuneytinu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðar skaða ekki fiskistofna né lífríki sjávar

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?