Karlmaður á sjötugsaldri lést á Landspítalanum gær, en maðurinn féll af reiðhjóli á göngustíg í Seljahverfinu í Breiðholti síðastliðin laugardag. Tilkynning um slysið barst lögreglu á níunda tímanum á laugardagsmorgun og var maðurinn fluttur á slysadeild, en hann lést svo á spítalanum í gær eins og áður sagði.
Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.
Umræða