Aðeins 23% þjóðarinnar treysta Bjarna og Kötu til að selja Íslandsbanka í miðjum heimsfaraldri
,,Almenningur treystir hreinlega ekki þessari sjálftökuelítu. Þetta verður að stoppa með öllum ráðum. Forseti Íslands getur stoppað bankaránið
a) með því að tala við ráðherra og gera honum grein fyrir vilja þjóðarinnar
b) með því að skrifa ekki undir nein lög varðandi málið né önnur mál þangað til ráðherra hefur dregið hugmyndir sínar til baka og
c) notað 25. gr. Stjórnarskrár íslenska lýðveldisins sem segir:
„Forseti lýðveldisins getur látið leggja fyrir Alþingi frumvörp til laga og annarra samþykkta.“ og sett lög sem banna bankasöluna.“ Segir Guðmunundur Franklín Jónsson, formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins og fyrrverandi forsetaframbjóðandi um fyrirhugaða bankasölu í miðjum heimsfaraldri.
Aðeins 23 prósent landsmanna treysta Bjarna frekar eða mjög vel til að leiða sölu á hlut ríkisins í bankanum og 14 prósent sagðist ekki hafa afgerandi skoðun á því hvort þeir treystu formanni Sjálfstæðisflokksins til verksins eða ekki. Alls segjast 63 prósent aðspurðra í nýrri könnun MMR treysta Bjarna Benediktssyni, fjármálaherra, mjög eða frekar illa til að leiða einkavæðingu Íslandsbanka.