Mokveiði hefur verið hjá línubátum víða um land undanfarnar vikur og eru sumar veiðiferðirnar líkastar ævintýri. Veiðin er nánast eingöngu þorskur og sjómenn velta fyrir sér hvort ekki sé tilefni til að auka þorskkvótann. Ríkisútvarpið fjallaði ítarlega um málið.
Það virðist vera sama í hvaða línuútgerð á landinu hringt er þessa dagana, alls staðar er mokfiskirí. Spegillinn hafði samband við nokkra staði og öllum viðmælendum bar saman um þetta.
Óska eftir því að ráðherra bæti 4.000 tonnum við strandveiðikvótann
Landssamband smábátaeigenda hefur óskað eftir því að matvælaráðherra bæti 4.000 tonnum af þorski við strandveiðikvótann til að tryggja veiðar út tímabilið. Þorskstofninn standi vel og þessi víðbót rúmist vel innan heildarveiði ársins.
Fengu tæp 43 tonn á eina og sömu lögnina
Sjávarútvegsvefurinn Aflafréttir segir til dæmis frá áhöfnum tveggja báta sem lentu í hálfgerðu ævintýri. Á öðrum bátnum þurfti þrjár ferðir til að koma aflanum af einni lögn í land og tvær ferðir hjá hinum. Annar þessara báta er Vigur SF, 30 tonna línubátur frá Hornafirði, þar sem Sævar Þór Rafnsson er skipstjóri. Þeir fengu tæp 43 tonn á eina og sömu línulögnina.
Skrýtið að mælingar sýni að það vanti fisk í sjóinn þegar allsstaðar er mokfiskirí
Hinsvegar sé þetta sama að gerast um allt land og aðstæður því misjafnar milli svæða. Veiðin sé með ólíkindum, en um leið sé ekki nægur kvóti og miklar skerðingar. Þetta bendi til þess að það sé sannarlega nægur þorskur í sjónum og varla í samræmi við það hvernig þorskstofninn er metinn og hvað er útgefið af kvóta. „Manni finnst það, þegar maður er að koma í land trekk í trekk með svona afla, að þá sé skrýtið ef það vanti fisk í sjóinn samkvæmt mælingum. Þegar fiskiríið er svona og hefur bara aldrei verið svona síðan ég man eftir á mínum rúmlega 20 ára sjómannsferli. Þá finnst manni það skrýtið, já ég verð að viðurkenna það.“