Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri og einn eigenda Deloitte á Íslandi, var í morgun sýknaður af ákæru um meint kynferðisbrot á Hótel Rangá vorið 2023
Héraðssaksóknari ákærði Þorstein Pétur vegna gruns um meint kynferðisbrot gegn ungri konu árið 2023 sem hann hefur sagt alla tíð að væri tilhæfulaus og var hann sýknaður fyrir dómi, nú um þremur árum síðar.
Þorsteinn Pétur hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í kjölfar dómsins
Þann 15. janúar sl. birtust í fjölmiðlum fréttir af ákæru á hendur mér. Í yfirlýsingu frá mér þann sama dag upplýsti ég að einfaldlega ekkert af því sem lýst var í stuttri ákæru hefði gerst. Ég treysti því að á endanum myndu staðreyndir tala sínu máli og sannleikurinn koma í ljós.
Nú í morgun féll dómur í málinu og var ég alfarið sýknaður af ákærunni og þessum tilhæfulausum ásökunum. Að vera sakaður um refsiverða háttsemi að ósekju er nokkuð sem á ekki að viðgangast en ég er þakklátur því að réttlætið náði fram að ganga.
Ég vil þakka fjölskyldu minni, vinum og öllum þeim sem hafa sýnt mér stuðning á þessum erfiða tíma.

