• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 12. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

ÁLYKTUN UM ÖRVUN HAGKERFIS MEÐ ÞÁTTTÖKU SVEITARFÉLAGA

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Bæjarráð Svf. Árborgar hvetur Alþingi og ríkisstjórn Íslands til að leita allra leiða í þeirri viðleitni að lágmarka efnahagslegt tjón af völdum COVID-19 heimsfaraldursins. Kólnun hagkerfisins með vaxandi atvinnuleysi er ógn við tekjustofna sveitarfélaga. Þegar í ofanálag eru horfur á verulegu hökti hagkerfisins, í kjölfar þess heimsfaraldurs sem nú ríður yfir landið, verður að grípa til róttækra aðgerða til að verja störf. Djúpfrysting hagkerfis, með tilheyrandi tekjutapi fyrir landsmenn, sveitarfélög og ríki, er ástand sem enginn vill upplifa aftur.
Gríðarleg uppsöfnun á fjárfestingaþörf hins opinbera og góð staða ríkissjóðs fela nú í sér tækifæri til sóknar. Með mannaflsfrekum framkvæmdum við viðhald og nýfjárfestingar fengi atvinnulífið þá innspýtingu sem nú bráðvantar og þannig mætti verja störfin. Varanleg niðurfelling virðisaukaskatts af fráveituframkvæmdum og tímabundin niðurfelling virðisaukaskatts af öðrum nýframkvæmdum sveitarfélaga myndu gefa sveitarfélögum aukið svigrúm til þátttöku í slíkum aðgerðum.
Svf. Árborg hefur nú þegar sent frá sér lista til Samtaka Sunnlenskra sveitarfélaga, að beiðni ríkisstjórnarinnar, yfir þær framkvæmdir sem sveitarfélagið sjálft gæti framkvæmt og ríkið komið að, auk þess sem þar er bent á stærri framkvæmdir sem væru alfarið á færi ríkisins.
Má í því sambandi nefna lúkningu á menningarhúsinu á Selfossi, sem orðið er afar brýnt að tekið verði í notkun – í ört vaxandi samfélagi Suðurlands. Sérstaklega má undirstrika mikilvægt og arðbært verkefni á listanum sem er þekkingar- og skrifstofusetur á Selfossi með „Staðarráðuneyti“ sem kjarnastarfsemi. Kjarni þess væri skrifstofa ráðuneytanna, með skrifstofustjóra, fyrir starfsmenn ráðuneyta og jafnvel ríkisstofnana sem búa á Suðurlandi.
Slíkt verkefni stuðlar að störfum án staðsetningar og mun draga mjög úr umferðarálagi og ferðum yfir Hellisheiði. Í því sambandi má benda á að um 20% íbúa sveitarfélagsins sækja störf sín á höfuðborgarsvæðið. Meirihluti þess fólks er háskólamenntað fólk sem starfar hjá fyrirtækjum, stofnunum og ráðuneytum staðsettum á höfuðborgarsvæðinu.
Stærri framkvæmdir, sem ríkið gæti framkvæmt í sveitarfélaginu, snúa helst að nauðsynlegum samgöngumannvirkjum, s.s. nýrri brú yfir Ölfusá, göngubrú við hlið þeirrar gömlu og tvöföldun hringvegar að Þjórsárbrú. Einnig er augljós þörf á mun fleiri hjúkrunarrýmum en þeim sem nú eru í byggingu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Bæjaryfirvöld munu á næstu dögum og vikum fylgjast vel með þróun mála með tilliti til hagsmuna íbúa sveitarfélagsins og lýsa sig reiðubúin til samstarfs við alþingi og ríkisstjórn um leiðir til að lágmarka efnahagslegt tjón vegna COVID-19 faraldursins.
Eggert Valur Guðmundsson – Tómas Ellert Tómasson – Gunnar Egilsson

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    68 deilingar
    Share 27 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?