Ákærður fyrir morð – Sambýliskonan gæti hafa verið í frysti í nokkur ár og lögreglan staðfestir morðrannsókn
Norskur maður á fimmtugsaldri hvefur verið ákærður fyrir bæði morð og vanhelgun á líki, eftir að lögreglan fann fyrrverandi sambýliskonu hans sundurlimaða í frysti.
Sænska blaðið, Aftonbladet, skrifar um málið og segir að lögreglan í hafi fundið líkamshluta af konu sem er talið að hafi verið geymd í frysti í nokkur ár. Heimildarmaður sagði blaðamanni að hún hafi hugsanlega verið látin í allt að átta ár. Lögreglan staðfesti að hún hafi hafið morðrannsókn og hugsanlega verði maðurinn settur í gæsluvarðhald strax á morgun.
,,Mér er ekki kunnugt um að konunnar hafi verið saknað. Það er dálítið skrítið, þar sem hún hefur verið í burtu um tíma,“ segir Karin Rosander fjölmiðlafulltrúi ríkissaksóknara.
Bjuggu saman
Konan sem lést er á sextugsaldri. Þau fluttu saman frá Noregi til Svíþjóðar fyrir rúmum tíu árum og hafa bæði verið skráð á sama heimilisfang síðan þá. Lögreglan er enn á staðnum, á afskekktum bæ í Värmlandi. Í húsi sem er að grotna niður og nokkrir bílar standa fyrir utan það og tómar bjórdósir blasa við út um allt.
Maðurinn er sagður hafa verið á sjúkrahúsi nýlega og sjálfur sagt að konan hafi verið falin í frysti, að sögn Aftonbladet.
Áður verið dæmdur
Samkvæmt fréttum NRK, hefur Norðmaðurinn áður hlotið dóm bæði í Noregi og Svíþjóð.
Hann hefur margoft verið dæmdur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, síðast árið 2022. Nú síðast í janúar 2023 var honum refsað fyrir að aka bifreið án ökuréttinda. Í Noregi hefur hann einnig verið dæmdur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann hefur einnig verið dæmdur fyrir kynferðislega áreitni.
Verjandi mannsins, Stefan Liliebäck, segir í samtali við NRK að hann geti staðfest að hann hafi hitt manninn og rætt við hann. ,,En ég get ekki sagt hvað við töluðum um,“ segir hann. Að sögn sænsku lögreglunnar hefur maðurinn neitað sök um morð og vanhelgun.
Nágranni: – Sá hann sjaldan
Nágranni mannsins sagði í samtali við blaðið að fólk hafi sjaldan séð manninn sem nú er ákærður fyrir morð. ,,Hann heldur sig út af fyrir sig og dregur alltaf gluggatjöldin fyrir gluggana. Ef við keyrum framhjá og heilsum honum, þá heilsar hann ekki til baka.“
Beðið verður um gæsluvarðhaldi yfir manninum í dag klukkan 12. Úrskurðarbeiðnin fer fram í héraðsdómi Värmlands í Karlstad.