Guðmundur Franklín Jónsson fer hispurslausum og hörðum orðum um meinta sölu Reykjavíkurborgar, á húsi Hjálpræðishersins, til Eyþórs Arnalds og félaga á vef sínum
,,Eyþór Laxdal Moses Arnalds Jónsson (kennitöluflakkari) tilvonandi borgarstjóraefni og gjaldþrota kaffisali frá Selfossi gerir það gott í Herkastalanum við Tjörnina.
Borgarstjóraefnið kemur örugglega til með að slíta samningi við Ólaf Ólafsson í Samskip og Jón Ásgeir Jóhannesson fyrrverandi Glitnis- og Baugsmann um uppbyggingu Reykjavíkur (sic).
Herkastalinn sem er við hliðina á Ráðhúsi Reykjavíkur er enn á undanþágum byggingar- og brunayfirvalda. Hjálpræðisherinn rak þar róna gistingu í meira en 100 ár en Reykjavíkurborg neyddi „Herinn“ til ad selja húsið á slikk til Eyþórs og félaga sem nú leigja það til Útlendingastofnunar fyrir meira en 200 milljónir á ári. Nú er sko aldeilis tíminn fyrir ólöglega innflytjendur og flóttamenn.
Hjálpræðisherinn fékk ekki einu sinni grið yfirvalda til að hlúa að íslenskum rónum eins og venjan var. þetta er eina trúfélagið á Íslandi sem fær ekki niðurfellingu byggingarleyfisgjalda á nýbyggingum sínum.
Áfram kristmenn krossmenn….. PS…rónarnir eru látnir deyja drottni sínum þar sem Borgarstjóraefnið lét fjarlægja gáma-neyðarskýli sem hafði verið komið upp á verðmætum lóðum leiðtogans í Örfyrisey…..“ Segir Guðmundur Franklín Jónsson á vef sínum um „Herkastalann“
Tengt efni:
https://gamli.frettatiminn.is/2018/06/03/islendingar-treysta-ekki-bonkum-og-fjarmalaeftirlitinu-ne-borgarstjorn-og-althingi/