• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 24. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Matvælastofnun fer yfir fjölda ábendinga um dauða fugla

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. apríl 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Fuglaflensa hefur verið  staðfest í þremur villtum fuglum á landinu sem fundist hafa undarfarna daga.  Um er að ræða  heiðagæs við Hornafjörð, hrafn á Skeiðum í Árnessýslu og súlu rétt við Strandakirkju við Suðurstandaveg.  Þá hafa heimilishænsni á bóndabæ á Skeiðum, þar sem hrafninn fannst, sýnt sjúkdómseinkenni og voru fuglarnir allir aflífaðir í dag. Sýni hafa verið tekin úr hænsnunum og er beðið niðurstöðu rannsóknar. Fuglaflensuveiran sem staðfest hefur verið í villtum fuglum er af gerðinni H5. Meinvirkni veirunnar er ekki þekkt. Beðið er niðurstaðna frekari greiningar frá erlendum rannsóknarstofum.   

Þá greinir MAST frá því á vef rúv.is að starfsmenn Matvælastofnunar taki á næstu dögum sýni úr dauðum fuglum á Suðurnesjum og sunnanverðu Snæfellsnesi. Fjölmargar ábendingar hafa borist stofnuninni vegna gruns um fuglaflensu. Matvælastofnun fer nú yfir fjölda ábendinga um dauða fugla sem bárust um páskahelgina. Flestar ábendingar hafa borist af suðvesturhorninu og Suðurlandi.

Viðbragðsáætlun Matvælastofnunar um viðbrögð og varnir gegn smitandi sjúkdómum í fuglum hefur verið virkjuð.

Um fuglaflensu sjá:  https://www.mast.is/is/baendur/lyfja-og-sjukdomaskraning/listi-yfir-sjukdoma-og-meindyr/fuglaflensa

Hænsfugla skyldi halda undir þaki til að draga úr líkum á útbreiðslu veirunnar.  Matvælastofnun brýnir alla alifuglaeigendur til að verja þá fyrir smiti frá villtum fuglum, m.a. halda undir þaki og girða af.  Sjá nánar: https://www.mast.is/is/um-mast/frettir/frettir/varnaradgerdir-gegn-fuglaflensu

Þau afbrigði veirunnar sem nú er mest um í nágrannalöndum okkar (H5N1) hafa ekki valdið sýkingum í fólki.  Ekki er talin hætta á að smit berist í fólk við neyslu eggja eða kjöts af alifuglum.  Líkurnar á smiti frá fuglum í fólk eru því litlar en þó er aldrei hægt að útiloka smit og fólk þarf ávallt að gæta sóttvarna við handfjötlun á veikum og dauðum fuglum.

Matvælastofnun hvetur almenning til að tilkynna um dauða villta fugla sem finnast á víðavangi ef ekki er augljóst að þeir hafi drepis af slysförum.  Best er að tilkynna í gegnum ábendingarkerfi á heimasíðu Matvælastofnunar (mast.is).  Þörf á sýnatöku verður metin af stofnuninni.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir eru látnir eftir bruna í fjölbýlishúsi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Lögreglan leitar manns

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    158 deilingar
    Share 63 Tweet 40
  • Þorsteinn Már Baldvinsson hættir sem forstjóri Samherja

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?