Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. var haldinn í Safnahúsinu í Neskaupstað í gær, þann 18. apríl 2023. Helstu niðurstöður fundarins voru þessar:
Tillaga um greiðslu arðs
Samþykkt var að arðgreiðsla á árinu 2023 vegna rekstrarársins 2022 verði 1,86 kr. á hlut eða 3.437 milljónir kr. (um 24,2 milljónir USD á lokagengi ársins 2022). Arðurinn verður greiddur 26. apríl 2023. Réttur hluthafa til arðgreiðslu miðast við hlutaskrá 21. apríl 2022.
Ákvörðun um þóknun til stjórnar félagsins
Samþykkt var að stjórnarlaun vegna ársins 2023 verði sem hér segir: Formaður verði með kr. 570.000 á mánuði en aðrir stjórnarmenn með 380.000. Varamenn verði með kr. 190.000 á mánuði.
Kosning stjórnar félagsins
Í stjórn félagsins voru kjörin: Anna Guðmundsdóttir, Baldur Már Helgason, Erla Ósk Pétursdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason og Þorsteinn Már Baldursson. Varamenn: Arna Bryndís Baldvins McClure og Ingi Jóhann Guðmundsson. Samsetning stjórnar uppfyllir ákvæði laga og samþykkta félagsins um kynjahlutfall.
Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum
Aðalfundur samþykkti að veita stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimildin gildir fyrir næstu átján mánuði en heildareign í eigin bréfum má ekki fara yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má ekki vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er.
Heimild þessa má nýta til að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluhöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum til dæmis með útboðsfyrirkomulagi enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi með þessari samþykkt.