Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 16. júní, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn var handtekinn á íþróttasvæði í austurborginni síðdegis í gær eftir að tilkynning barst um mann sem þar væri að bera sig fyrir framan börn.
Viðkomandi hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu vegna blygðunarsemisbrota gagnvart börnum og fullorðnum á sama svæði síðustu vikur og mánuði. Maðurinn unir úrskurðinum.
Umræða