• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

E.coli sýking staðfest hjá 21 einstaklingi – Nítján börn og tveir fullorðnir

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. júlí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Í gær voru rannsökuð sýni frá 6 einstaklingum og greindist enginn með E. coli sýkingu. Alls hefur E. coli sýking því verið staðfest hjá 21 einstaklingi, þar af eru 19 börn og tveir fullorðnir. Ekkert barn er nú inniliggjandi á Barnaspítala Hringsins af völdum STEC E. coli og enn er beðið eftir staðfestingu á greiningu hjá barninu í Bandaríkjunum sem grunað er um alvarlega E. coli sýkingu.

E. coli bakteríur

Niðurstöður frá þeim tveimur fullorðnu einstaklingum sem greindust með bakteríuna þ. 17. júlí sýndu að báðir voru þeir með sömu tegund og greinst hefur í börnunum og kálfum í Efstadal. Annar einstaklinganna starfar í Efstadal og hefur verið einkennalaus. Viðkomandi hefur ekki starfað við matvælaframleiðslu eða afgreiðslu matvæla og hefur því ekki sérstaka tengingu við hina sýktu.
Niðurstaðan sýnir hins vegar að E. coli bakterían er útbreiddari á staðnum en áður hefur verið sýnt fram á og ekki eingöngu bundin við kálfana.
Hinn einstaklingurinn er erlendur ferðamaður sem kom til landsins 5. júlí sl. Hann heimsótti Efstadal 8. júlí og veiktist 11. júlí. Í Efstadal neytti hann matvæla, þar á meðal íss en var ekki í samneyti við dýr.
Það er því ljóst að ekki hefur tekist að uppræta smit og smitleiðir í Efstadal með þeim aðgerðum sem gripið var til um og eftir 4. júlí sl. Í ljósi þessara upplýsinga hefur Heilbrigðiseftirlit Suðurlands í samráði við Matvælastofnun gert kröfur um úrbætur á eftirfarandi þáttum starfseminnar:

  1. Sala íss verði stöðvuð þar til alþrif og sótthreinsun hefur verið gerð. Framleiðsla íss á staðnum var stöðvuð þ. 5. júlí sl. og verður ekki hafin fyrr en að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
  2. Alþrif og sótthreinsun fari fram á veitingastað og aðlægum rýmum (var lokið 19.7).
  3. Aðgengi að dýrum verði áfram lokað þar til viðunandi hreinlætisaðstaða/handþvottaraðstaða hefur verið sett upp.
  4. Aðskilnaður milli veitingasvæða og dýra verði efldur.
  5. Starfsmenn sem vinni við matvæli þurfi að sýna fram á þeir séu ekki með bakteríuna STEC E.coli.
Sóttvarnalæknir
Matvælastofnun
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
Sýklafræðideild LSH
MATÍS
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?