Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins var birt í dag þess efnis að beita Brim hf. dagsektum, þar sem fyrirtækið hefur ekki enn veitt mikilvægar upplýsingar og gögn sem óskað var eftir í tengslum við yfirstandandi athugun Samkeppniseftirlitsins á stjórnunar- og eignatengslum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Gagnaöflun frá fyrirtækjum hófst með bréfi til allmargra sjávarútvegsfyrirtækja, dagsettu 5. apríl síðastliðinn. Langflest fyrirtækin brugðust vel við beiðninni og veittu umbeðnar upplýsingar. Í nokkrum tilvikum voru þó gerðar athugasemdir við athugunina og upplýsingar veittar með fyrirvara af þeim sökum.
Eitt fyrirtæki, Brim hf., hefur þó ekki enn veitt mikilvægar upplýsingar og gögn sem óskað var eftir. Hefur það óhjákvæmilega tafið rannsóknina.
Eftir ítrekuð bréfaskipti hefur Samkeppniseftirlitið nú tekið ákvörðun um að nýta sér heimild sem kveðið er á um 38. gr. samkeppnislaga til þess að beita fyrirtækið dagsektum. Þannig er Brim gert að greiða dagsektir að upphæð 3.500.000 kr. á dag, þar til umbeðnar upplýsingar og gögn hafa verið afhent. Byrja dagsektirnar að reiknast eftir að fjórtán dagar eru liðnir frá ákvörðun um hana, í samræmi við 39. gr. samkeppnislaga.
Ákvörðunin sjálf og nánari upplýsingar og hlekkir í meðfylgjandi grein: https://www.samkeppni.is/utgafa/frettir/stada-athugunar-a-stjornunar-og-eignatengslum-fyrirtaekja-i-sjavarutvegi-og-akvordun-um-dagsektir
Umræða