• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Óviss framtíð rafbíla: Ford yfirgefur rafbílinn – framleiðir bensínknúna pallbíla í staðinn

Óviss framtíð rafbíla: Ford yfirgefur rafbílinn – framleiðir bensínknúna pallbíla í staðinn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. júlí 2024
in Erlent, Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Í miðri framleiðslu skiptir Ford um stefnu og fjárfestir í framleiðslu á eldneytisdrifnum pallbílum í stað rafbíla. Alla vega í Kanada þar sem verksmiðjan sem upphaflega átti að framleiða rafbíla hefur neyðst til að breyta áætlunum sínum vegna minnkandi sölu. Að sögn New York Times hefur salan dregist það mikið saman að það er ekki lengur arðbært að framleiða rafbíla lengur.

Ford tilkynnti ákvörðun sína í gær, fimmtudag. Ford er þar með einn af mörgum bílaframleiðendum sem skipta um stefnu vegna lélegrar eftirspurnar á rafbílum. Bæði Ford og General Motors hafa þurft að fresta byggingu rafgeymaverksmiðja og framleiðslu nýrra bílategunda. General Motors tilkynnti fyrr í vikunni, að fyrirtækið þyrfti að lækka söluspár sína varðandi rafbíla.

Super-Duty bensíndrifnir pallbílar renna út

Verksmiðja Fords sem staðsett er í Oakville (Ontario), Kanada, hætti nýlega framleiðslu á bensínknúnum Ford Edge jepplingum. Eftir það var gert ráð fyrir að Ford Explorer og Lincoln Aviator rafbílar yrðu framleiddar í staðinn.

En vegna minnkandi sölu á rafbílunum varð að breyta áætlunum og fara í staðinn yfir í framleiðslu á arðbærustu gerð Ford bíla, sem eru bensínknúnir Super-Duty pallbílar. Forstjóri Ford, Jim Farley, réttlætir ákvörðunina með mikilli eftirspurn Super-Duty pallbílanna. Þeir eru aðeins framleiddir í tveimur öðrum verksmiðjum sem anna ekki þörfum markaðarins eins og er.

Óviss framtíð rafbíla

Ætlunin er að Oakville verksmiðjan framleiði Super Duty módelið frá 2026 með afkastagetu upp á 100.000 bíla árlega. Framleiðslan skapar 1.800 störf sem veitir ekki af fyrir efnahag Kanada. Ford tilkynnti að enn séu áform um að búa til rafbílana Explorer og Aviator. Þeir vita hins vegar ekki hvenær eða hvar það verður.

Eftir að Justin Trudeau tók við embætti forsætisráðherra Kanada árið 2015 og með tilkomu Covid-19 heimsfaraldursins hefur efnahagurinn sífellt skroppið saman. Gagnrýni á efnahagsstefnu Trudeau hefur aukist á undanförnum árum og kemur alls staðar frá, einnig frjálslyndum og vinstri mönnum.

Tesla sem er leiðandi í rafbílaiðnaðinum hefur þurft að lækka verðið á rafbílum sínum og hefur jafnframt dregið úr framleiðsluáætlunum sínum í Mexíkó og Indlandi.

Áskoranir rafbílsins í Kanada

Tilkynning Ford kemur ekki mjög á óvart þegar litið er á landafræði Kanada, loftslag og dreifbýli. Landið er flatamáli næst stærsta land í heimi á eftir Rússlandi. Samtímis er landið eitt af strjálbýlustu löndum heims. Vegalengdir milli borga, bæja og þorpa landsins eru yfirleitt miklar sem gerir landið háð bíla- og flugumferð. 90% íbúa landsins búa í syðsta hluta landsins við landamæri Bandaríkjanna.

Ef keyra á rafbíl langar vegalengdir í Kanada, þá þurfa hleðslustöðvar að vera til staðar alls staðar eins og í eyðibyggðinni í þessu víðáttumikla landi. Eins og er, þá eru fáar hleðslustöðvar til staðar í dreifbýlinu. Það getur því verið lífshættulegt að verða rafmagnslaus úti á landi í nístandi kulda. Að reyna að koma rafbílnum í gang á vetrardegi með 15-20 stiga frost er í sjálfu sér frekar vonlaust verkefni án aðgangs að hleðslutæki. Að kanadískir bíleigendur velji ökutæki sem fara í gang allt árið um kring, óháð veðri og hleðslustöðum, er því ekkert skrítið.

Umræða
Share42Tweet26
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?