• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Matvælaráðherra úthlutar 584,6 milljónum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. ágúst 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur úthlutað 584,6 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 58 verkefni styrk en 211 umsóknir bárust til sjóðsins.

Meðal þeirra fjölbreyttu og áhugaverðu verkefna sem fengu úthlutun má nefna:

  • Hringrásarhænur í bakgörðum
  • Þróa sælkeravöru úr lamba- og kindaslögum
  • Markaðsátak í útflutningi á íslensku viskýi
  • Aukin bragðgæði og áferð íslensks fisks með hægmeyrnun
  • Visthæfing landeldis
  • Bætiefnadrykkir með íslenskum þörungum
  • Eftirlit og upprunavottun fyrir íslenskar saltfisksfurðir
  • Próteinframleiðsla úr grasi
  • Frumþróun bragðefna úr þangi fyrir austurlenskan mat
  • Viðskiptaáætlun fyrir mjólkurfé og sauðaostagerð
  • Folaldajerky og -hrápylsur
  • Verðmætasköpun úr hliðarafurðum bjórgerðar

„Sá sköpunarkraftur og sú áræðni sem íslenskir matvælaframleiðendur búa yfir er sérstakt ánægjuefni og sýnir áþreifanlega að Ísland er á réttri leið sem matvælaland. Það gleður mig einnig að sjá að hlutföll á milli kynja eru nær jöfn,“ segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

Matvælasjóður veitir styrki í fjórum styrkjaflokkum: Báru, Keldu, Afurð og Fjársjóði. Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkþegar geta verið fyrirtæki sem stofnuð eru á síðustu fimm árum. Einnig frumkvöðlar sem vilja þróa hugmynd, hráefni eða aðferðir sem tengjast íslenskri matvælaframleiðslu. Kelda styrkir verkefni sem miða að því að afla nýrrar þekkingar sem styður við markmið sjóðsins um nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.

Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar. Styrkveitingar miða að því að gefa styrkþegum tækifæri til að móta og þróa afurðir úr hráefnum sem falla til við matvælaframleiðslu og stuðla þar með að verðmætasköpun.

Fjársjóður styrkir verkefni sem hafa það markmiði að styrkja markaðsinnviði og stuðla að markaðssókn afurða tengdum íslenskri matvælaframleiðslu.

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.

Svarbréf verða send öllum umsækjendum á næstu dögum.

Opnað verður fyrir umsóknir fyrir næstu úthlutun úr Matvælasjóði á vormánuðum 2023.

Sjá nánar á heimasíðu matvælasjóðs.
Nánari upplýsingar um úthlutun sjóðsins (pdf)

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mikið viðbragð vegna leka um borð í fiskibáti norður af Rifi

    Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Salmonella staðfest

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?