Þessi mynd er tekin tveimur árum eftir hrun. Ég var einstæð móðir og þurfti, eins og margir, að leita til Umboðsmanns skuldara og fá hjálp. Vann svo myrkranna á milli til að borga og borga og borga upp það sem eftir stóð. Laun hjúkrunarfræðinga eru ekki til að hrópa húrra fyrir en á endanum tókst mér að komast frá “hruninu” og meira segja creditinfo útskrifuðu mig! Jibbý. Ég var með allt á tæru.
En úbbss rétt nýkomin á þessa fínu siglingu í lífinu verð ég fyrir miklum skaða í fæðingu. Ég missi algjörlega heilsuna og það var alveg nýtt fyrir mér, vera öðrum háð um að komast fram úr rúminu, missa hægðir og þvag til skiptis, fá hjálp við að þrífa mig. Engjast af verkjum sem gerðu mig lifandi-dauða. Þurfa upphugsa allt upp á nýtt.
Creditinfo sviptu mig ekki sjàlfstraustinu en það gerði heilsuleysið. Það tekur tíma að byggja upp nýja sjálfsmynd og finna sitt nýja sjálfstraust.
Ég hef aldrei haft áhuga á pólitík en það gerðist eitthvað við að heyra fjármálaráðherra BB tala niður til öryrkja og í framhaldinu Samherjamálið allt, fylgjast með spillingunni. Ég hef sterka réttlætiskennd og íslenska þjóðin á betra skilið en að lúta stjórn fjármálaóðra manna sem hugsa aðeins um sig og ríku vini sína.
Ég kýs Sósíalistaflokkinn því þar er venjulegt, allskonar fólk sem vill koma Jóakim Önd frá og moka gullpeningunum hans og allra vina hans út í samfélagið, út í velferðarkerfið. Út til þeirra lægst launuðu sem borga leigu og horfa svo á dagatalið með kvíðahnút í maganum út mánuðinn.
X-J💪💪 Ég er flokksbundin en ekki í framboði. Þetta er bara mitt einlæga vopn (að skrifa) til að leggja flokknum lið.
Mynd: Heiðar Kristjánsson.
https://gamli.frettatiminn.is/02/04/2020/her-sjaid-thid-launasedil-hjukrunarfraedings/