,,Ýmislegt bendir til þess að félagið sé milliliður í innflutningi Kaupfélags Skagfirðinga á kjöti sem fer beint í vinnslu Esju Gæðafæðis, dótturfélags KS“
Einkahlutafélagið Háihólmi skilaði tæplega 1,2 milljóna króna hagnaði á sínu fyrsta rekstrarári. Félagið hefur fengið úthlutað tollkvótum fyrir innflutningi á um 370 tonnum af kjöti síðan um mitt ár 2023.
Samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2023 námu rekstrartekjur fyrirtækisins tæpum 598 milljónum króna en kostnaðarverð seldra vara voru rúmar 578 milljónir króna. Félagið greiddi laun fyrir starfsmann í 40% starfshlutfalli og annan rekstrarkostnað upp á um sjö milljónir króna. Eignir félagsins námu tæplega 75 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi og eigið fé í árslok nam tæpum 1,7 milljónum króna.
Félagið og hlutafé þess er að fullu í eigu Birgis Karls Ólafssonar. Starfsemi Háahólma er skilgreind í ársreikningnum sem rekstur heildsölu. Ýmislegt bendir til þess að félagið sé milliliður í innflutningi Kaupfélags Skagfirðinga á kjöti sem fer beint í vinnslu Esju Gæðafæðis, dótturfélags KS, eins og fram kom í 13. tölublaði Bændablaðsins.
Á aðalfundi KS um mitt síðasta ár beindu félagsmenn því til stjórnar KS að félagið og dótturfélög þess stæðu ekki í innflutningi á erlendum búvörum og eftir það hefur Esja Gæðafæði ekki tekið þátt í útboðum á ESB- og WTO-tollkvótum á landbúnaðarafurðum.
Hins vegar selur Esja Gæðafæði enn erlent kjöt, sem fæst meðal annars í Sælkerabúðinni að Bitruhálsi, hvar Esja Gæðafæði er einnig til húsa.