,,Í morgun var mikil hálka á Reykjanesbrautinni og varð útafakstur á Strandarheiði. Okkar fólk fór að sjálfsögðu á vettvang til aðstoðar, en okkur var verulega brugðið að sjá tillitleysið í okkar garð á slysavettvangi.“ Segir lögreglan á Suðurnesjum.
,,Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var mikil hálka á Reykjanesbrautinni á umræddum tíma og akstursskilyrði ekki góð. Hámarkshraði á Reykjanesbraut er 90 km/klst miðað við bestu aðstæður, þær aðstæður voru ekki í morgun. Lögreglumenn á vettvangi töluðu um að ökumenn sem óku á hægri akreininni hafi ekki svo mikið sem hægt á sér við vettvanginn og sagði einn lögreglumaður sem var á vettvangi við kollega sinn að þetta myndi ekki enda vel.
Sú varð raunin….5 mínútum eftir að hann sagði þetta var ekið aftan á lögreglubifreiðina með þeim afleiðingum að lögreglubifreiðin er talsvert skemmd, hin bifreiðin að öllum líkindum ónýt en það versta að okkar menn og ökumaður hins bílsins finna til eymsla eftir óhappið.
Það er einlæg ósk okkar að ökumenn sýni tillitssemi í kringum slysavettvanga og dragi verulega úr hraðanum er þeir nálgast vettvanginn til að koma í veg fyrir frekari slys.
Förum varlega í umferðinni, ökum miðað við aðstæður og sýnum hvoru öðru tillitssemi.“