The Namibian fjallar um yfirlýsingu Samherja hf. í vefmiðli sínum en yfirlýsingin hefur verið mikið rædd á vefmiðlum á Íslandi þar sem sitt sýnist hverjum. Hér er umfjöllun The Namibian og neðst er svo yfirlýsing Samherja:
,,Íslenskt fyrirtæki sem var miðdepill í mútugreiðslu hneykslinu segist nú ætla að draga viðskipti sín frá Namibíu.
Fyrirtækið, sem lýsti Namibíumönnum m.a. sem letingjum, fyrir sex árum, hefur reynt að selja eignir sínar í Namibíu, þar með talið 400 milljón dala skip sem það keypti til nota í Namibíu, til þess að fá úthlutað fiskveiðikvóta í landinu.
Björgólfur Jóhannsson, starfandi framkvæmdastjóri Samherja, staðfesti útgöngu fyrirtækisins í yfirlýsingu sem gefin var út á föstudag.
,,Samherji er um þessar mundir að draga úr starfsemi sinni í Namibíu með það að markmiði að hætta alfarið rekstri í landinu. Hins vegar er ljóst að það mun taka einhvern tíma. Allar ákvarðanir vegna starfseminnar í Namibíu verða teknar í nánu samráði við þar til bær stjórnvöld og í samræmi við gildandi lög og reglur. “sagði hann.
Íslenska sjávarútvegsfyrirtækið er sakað um að hafa greitt mútur til namibískra stjórnmálamanna eins og Sacky Shanghala, fyrrverandi ráðherra og sjávarútvegsráðherra Bernhard Esau. Stjórnmálamennirnir og bandamanna þeirra, svo sem fyrrverandi framkvæmdastjóra Investec Asset Management í Namibíu, James Hatuikulipi, sem standa nú frammi fyrir ákæru um spillingu og peningaþvætti.
Umdeilanlegar millifærslur geta numið allt að 2,5 milljörðum namibíu dala
Skjöl sem uppljóstrarinn Jóhannes Stefánsson lak í fjölmiðla, sýna fram á að yfirmaður hjá Samherja lýsti Namibíu árið 2014 „sem fallegu landi og góðu fólki. Lítil þjóð í stóru landi. Glaðlegt og latt fólk.“ Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi forstjóri Samherja, lét af störfum í nóvember á síðasta ári eftir að mútugreiðslu hneykslið varð opinber.
Fyrirtækið fullyrðir nú að það muni innleiða stjórnunar- og regluvörslukerfi til að berjast gegn spillingu í kjölfar spillingar hneykslisins. Búist er við að kerfinu verði hrint í framkvæmd síðar á þessu ári.
„Nýja kerfið verður hluti af framtíðarstjórnun Samherja samstæðunnar og mun ná til Samherja og allra dótturfyrirtækja þess,“ sagði Björgólfur Jóhannsson. Nýja eftirlitskerfi fyrirtækisins mun byggjast á áhættuskipulagi fyrirtækisins með áherslu á spillingu og peningaþvætti, meðal annars.
Kerfið fellur undir nýja innri áætlun og þess krafist að allir starfsmenn taki virkan þátt í endurmatsferli fyrirtækisins. „Við munum innleiða kerfi fyrir áhættumat, siðareglur og stefnu í samræmi við kerfið,“ bætti Björgólfur Jóhannsson við. Hér er svo yfirlýsingin í heild sinni:
Samherji mun innleiða nýtt stjórnunar- og regluvörslukerfi
Samherji hefur gripið til ráðstafana til að innleiða nýtt stjórnunar- og regluvörslukerfi. Ákvörðun um innleiðingu kerfisins var tekin á grundvelli reynslu af starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Nýja kerfið verður hluti af framtíðarstjórnun Samherja samstæðunnar og mun ná til Samherja og allra dótturfyrirtækja.
„Samherji mun þróa og innleiða heildrænt stjórnunar- og regluvörslukerfi sem byggist á áhættuskipulagi fyrirtækisins, meðal annars með áherslu á spillingu, efnahagslegar refsiaðgerðir og peningaþvætti,“ segir Björgólfur Jóhannsson starfandi forstjóri Samherja. Stefnt er að því að ljúka innleiðingu kerfisins síðar á þessu ári.
„Þetta kerfi mun gegna lykilhlutverki í nýrri áætlun þar sem við munum krefjast þess að allir starfsmenn taki virkan þátt í ferli til að endurmeta gildi okkar, menningu og starfsvenjur. Við munum síðan innleiða verkferla fyrir áhættumat og siðareglur í samræmi við kerfið.“
Björgólfur segir að þrátt fyrir alvarlegar ásakanir á hendur félaginu í fjölmiðlum hafi tekist að verja öll sambönd við viðskiptavini og samstarfsaðila þess, bæði hér innanlands og erlendis. Samherji hafi náð að þjónusta alla viðskiptavini sína með sama hætti og félagið hafi gert í gegnum tíðina. „Starfsmenn okkar hafa, eins og alltaf, unnið frábært starf til að ganga úr skugga um við afhendum afurðir í hæsta gæðaflokki hér heima og á hinum alþjóðlega markaði,“ segir Björgólfur.
Samherji er um þessar mundir að draga úr starfsemi sinni í Namibíu með það að markmiði að hætta alfarið rekstri í landinu. Hins vegar er ljóst að það mun taka einhvern tíma. Allar ákvarðanir vegna starfseminnar í Namibíu verða teknar í nánu samráði við þar til bær stjórnvöld og í samræmi við gildandi lög og reglur.
https://www.namibian.com.na/87167/read/Fishrot-scandal-player-Samherji-to-exit-Namibia