Hugleiðingar veðurfræðings
Suðaustan hvassviðri eða stormur kemur með hlýtt loft og talsverða úrkomu í dag. Víða rigning sunnan- og vestantil en einnig snjókoma eða slydda á fjallsvegum í fyrstu. Þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti verður á bilinu 5 til 10 stig síðdegis í dag. Viðvaranir eru gefnar út fyrir storm á sunnan- og vestanverðu landinu og fyrir asahláku um allt land. Auk þess er varað við flughálku sem gæti myndast á blautum klaka.
Dregur smám saman úr vindi og úrkomu seint í nótt. Á morgun verður suðvestanátt með skúrum eða éljum en lengst af þurrt norðaustantil. Kólnandi veður aftur, hiti í kringum frostmark seinnipartinn. Það hvessir vestantil á landinu annað kvöld. Gengur í suðvestan hvassviðri eða storm á sunnudag með éljum og vægu frosti. Umhleypingar halda áfram næstu viku. Spá gerð: 20.01.2023 06:40. Gildir til: 21.01.2023 00:00.
Veðuryfirlit
Um 400 km V af Reykjanesi er vaxandi 980 mb lægð sem fer N og frá hennis teygir sig lægðardrag til SV. Yfir Færeyjum er 1016 mb hæðarhryggur sem þokast A. 200 km S af Svalbarði er hægfara 987 mb lægð sem grynnist.
Samantekt gerð: 20.01.2023 03:27.
Veðurhorfur á landinu
Suðaustan 15-23 m/s og snjókoma á köflum sunnan- og vestanlands, en síðar rigning á láglendi. Lengst af þurrt norðaustantil.
Snýst í sunnan 10-18 kringum hádegi með talsverðri rigningu, en úrkomuminna á Norður- og Austurlandi. Hiti víða á bilinu 5 til 10 stig síðdegis.
Minnkandi suðvestanátt á morgunmeð él eða skúrum, 5-13 m/s síðdegis en lengst af þurrt norðaustanlands. Kólnandi veður, hiti yfirleitt í kringum frostmark seinnipartinn. Hvessir og bætir í él vestantil annað kvöld.
Spá gerð: 20.01.2023 05:07. Gildir til: 21.01.2023 00:00.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðaustan 15-23 og rigning. Snýst í sunnan 10-15 um hádegi með talsverðri úrkomu um tíma. Hlýnandi veður, hiti 6 til 9 stig seinnipartinn.
Suðvestan 5-10 og skúrir eða él á morgun. Kólnandi veður, hiti í kringum frostmark síðdegis. Hvessir annað kvöld.
Spá gerð: 20.01.2023 05:15. Gildir til: 21.01.2023 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Sunnan og suðvestan 5-13 m/s. Dálítil él eða skúrir á vestanverðu landinu með hita 0 til 5 stig. Hiti 5 til 10 stig á austurhelmingi landins, og rigning suðaustantil fram eftir degi. Bætir í vind og él vestanlands um kvöldið og hiti þá víða kringum frostmark á landinu.
Á sunnudag:
Vaxandi suðvestanátt, 13-20 m/s síðdegis. Víða él, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Frost 0 til 5 stig.
Á mánudag:
Vestan og suðvestan 5-10, en 10-18 um landið norðanvert. Víða þurrt og bjart veður. Dregur úr vindi seinnipartinn og þykknar upp undir kvöld. Frost 3 til 10 stig.
Á þriðjudag:
Breytileg átt 5-13. Rigning eða slydda sunnanlands og hiti 1 til 5 stig. Snjókoma norðantil á landinu og frost 0 til 5 stig þar. Styttir upp á Austurlandi eftir hádegi.
Á miðvikudag:
Minnkandi vestlæg átt og víða bjartviðri en él norðaustantil framan af degi. Frost 0 til 8 stig. Þykknar upp vestantil síðdegis með rigningu eða slyddu og hlýnandi veðri þar um kvöldið.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga átt, víða rigningu en úrkomuminna norðaustantil. Milt í veðri.
Spá gerð: 19.01.2023 20:57. Gildir til: 26.01.2023 12:00.