„Þetta er það svigrúm sem við höfum samkvæmt fjármálaáætlun,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í Morgunútvarpi Rásar 2 þegar að hún var spurð hvort tillögur ríkisstjórnarinnar í skattamálum til að liðka fyrir kjarasamningum, væru lokatilboð stjórnvalda.
Forsætisráðherra sagði að stjórnarflokkarnir hefðu sammælst um að útfæra þá skattalækkun um á eitt prósentustig, sem kveðið væri á um í stjórnarsáttmálanum, þannig að hún kæmi sér best fyrir tekjulægsta hópinn. „Þannig að við erum að leggja til þriggja þrepa kerfi, sambærilegt að einhverju leyti því sem var hér í tíð vinstristjórnarinnar.“
Þegar hún var spurð um hátekjuskatt svaraði Katrín að það hefði alltaf legið fyrir frá því ríkisstjórnin hefði verið mynduð, að slíkur skattur yrði ekki settur á.
Sagðist hún vilja ítreka það að stjórnvöld hefðu verið hreinskilin frá því samtal þeirra við aðila vinnumarkaðarins hófst. Stærstu félög launþega hafa sagt tillögurnar gríðarleg vonbrigði og úr takti við raunveruleikann og líklegast verður öllum viðræðum slitið strax á morgun og farið að hefja undirbúning verkfalla sem að geta jafnvel varið í mánuði og framyfir ferðamanna- tímabilið sem að framundan er, þar sem að allt flug til og frá landinu, getur stöðvast, ef að ekki næst að semja.
„Það má lesa það út úr fjármálaáætlun og við höfum verið mjög skýr í öllum okkar yfirlýsingum en það breytir því ekki að við viljum auðvitað halda þessu samtali áfram um ýmislegt fleira sem getur orðið til þess að bæta lífskjör í landinu,“ sagði Katrín. Þegar að hún var svo spurð aftur hvort frekari breytingar á skattkerfinu væru hins vegar ekki í boði sagði hún: „Við kynntum þær í gær.“
https://www.fti.is/2018/10/15/hraesni-vinstri-graenna-og-aumingjaskapur-2/