Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu hafa verið að berast tilkynningar um nýtt form af netglæp.
Í tölvupósti er látið líta út fyrir að viðtakandi póstsins tengist rannsókn CIA á barnaklámi og er pósturinn að því leiti frekar ógeðfelldur.
Þetta er fjölpóstur og ekki hafa áhyggjur, póstinum fylgir ekki óværa og ekki gera neitt. Hann er sendur til að vekja hræðslu í von um að fólk borgi af ótta, en ekkert er hæft í efni póstsins og ef vel er að gáð þá má sjá að pósturinn er uppruninn í Gabon, Mið-Afríku Lýðveldinu, Malí eða öðru ríki og hefur ekkert með CIA að gera.
Auðvitað er óþægilegt að fá slíkan póst en við biðjum fólk að halda ró sinni.
Ef fólk er að fá slíka pósta þá biðjum við það að senda þá til okkar á cybercrime@lrh.is eða á Facebook.
Ef fólk er að fá slíka pósta þá biðjum við það að senda þá til okkar á cybercrime@lrh.is eða á Facebook.
Umræða