Kvikmyndin Allra síðasta veiðiferðin var frumsýnd í kvikmyndahúsum nú í marsmánuði en um er að ræða sjálfstætt framhald af vinsælu gamanmyndinni Síðasta veiðiferðin. Eins og áður eru það Markel-bræður, Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson, sem bæði leikstýra og framleiða myndina.
Leikarar eru fleiri en í fyrri myndinni, Sigurð Sigurjónsson fer með eitt aðalhlutverkið sem tengdapabbi Vals Aðalsteinssonar fjárfestis, sem er leikinn af Þorsteini Bachmann.
Sigurður Sigurjónsson á stórleik í myndinni og það eru ýmsar kómískar uppákomur í þessari mynd eins og þeirri fyrri. Mikið er drukkið í veiðitúrnum eins og áður og skrautlegar uppákomur í samræmi við það. Tökurnar fóru fram við Laxá í Aðaldal, þannig að sögusviðið er stórkostlegt.
Yfirskriftin á plakatinu fyrir myndina er: „Það má ekkert klikka í þessum túr“ en það er óhætt að segja að það hafi ekki gengið eftir og leikarahópurinn sá um að koma því vel og sannfærandi á framfæri í þessari stórskemmtilegu gamanmynd.
,,Eftir ævintýralegan laxveiðitúr fyrra sumars er ákveðið að halda aftur til veiða, þrátt fyrir misgóðar minningar úr þeim túr. Til að koma sér áfram í pólitík býður Valur Aðalsteins félögunum í flotta laxveiði með því skilyrði að þeir hagi sér vel og ekkert megi klikka. Vegurinn til Helvítis er eins og áður varðaður góðum ásetningi og er þessi túr ekki undanskilin því…“
Nýir leikarar eru þeir Sigurður Sigurjónsson, Sigurður Þór Óskarsson og Gunnar Helgason.
Þá eru sömu leikarar og í Síðustu veiðiferðinni:
Þorsteinn Bachmann, Halldór Gylfason, Hilmir Snær Guðnason, Þröstur Leó Gunnarsson Jóhann Sigurðarson og Hjálmar Hjálmarsson ásamt lögreglukonunum, Halldóru Geirharðsdóttur og Ylfu Marín Haraldsdóttur. Edda Björg Eyjólfsdóttir og Hallur Ingólfsson sem leikur enn prestinn eins og í fyrri myndinni.
Myndin er m.a. sýnd í Laugarásbíó.