Hugleiðingar veðurfræðings
Lægð nálgast nú landið úr suðvestri. Í dag verður því hægt vaxandi austan- og suðaustanátt og það hlýnar sunnanlands með rigningu eða slyddu. Víða 10-18 m/s síðdegis og snjókoma með köflum um landið norðanvert, en undir kvöld lægir suðvestantil á landinu.
Í nótt dýpkar lægðin ört og á morgun er útlit fyrir norðaustan storm á Vestfjörðum með talsverðri ofankomu, sannkölluð stórhríð og ekkert ferðaveður. Annars staðar á Norður- og Norðvesturlandi verður einnig stíf norðaustanátt og slydda eða snjókoma, en sunnan- og austanlands verður vindur yfirleitt mun hægari og rigning eða slydda með köflum.
Annað kvöld snýst í norðan og norðvestan hvassviðri eða storm á landinu með talsverðri snjókomu um landið norðanvert, og ekki er útlit fyrir að veðrið gangi niður fyrr en aðfaranótt laugardags. Spá gerð: 20.03.2024 06:20. Gildir til: 21.03.2024 00:00.
Appelsínugul viðvörun vegna veðurs
Veðurhorfur á landinu
Suðlæg eða breytileg átt 5-15 m/s. Stöku él og hiti um eða undir frostmarki, en hlýnar sunnanlands með rigningu eða slyddu. Gengur í austan og suðaustan 10-18 seinnipartinn með snjókomu á köflum um landið norðanvert, en lægir suðvestantil undir kvöld.
Norðaustan 18-25 m/s á norðvestanverðu landinu á morgun, annars mun hægari vindur. Snjókoma eða slydda norðantil, sums staðar talsverð ofankoma, en rigning eða slydda með köflum sunnan- og austanlands. Hiti 0 til 6 stig. Snýst í norðan og norðvestan 15-23 annað kvöld og kólnar.
Spá gerð: 20.03.2024 09:57. Gildir til: 22.03.2024 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Norðan 15-23 m/s og snjókoma, en úrkomulítið sunnantil. Hiti um eða undir frostmarki, en mildara á Suðausturlandi. Fer að draga úr vindi undir kvöld.
Á laugardag:
Minnkandi norðlæg átt, 5-13 síðdegis. Él á Norður- og Austurlandi, annars þurrt að mestu. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust syðst.
Á sunnudag:
Norðaustan og austan 5-13. Dálítil él og frost 1 til 9 stig, en lítilsháttar snjókoma eða slydda suðvestantil og hiti um eða yfir frostmarki.
Á mánudag:
Norðlæg átt og él, en þurrt að kalla norðvestantil. Frost 2 til 12 stig.
Á þriðjudag:
Norðaustanátt og snjókoma með köflum í flestum landshlutum. Frost 0 til 10 stig en frostlaust við suðurströndina.
Spá gerð: 20.03.2024 08:40. Gildir til: 27.03.2024 12:00.