,,Er þjóðin óánægð með að búa við eitt lægsta orkuverð í heimi og að orkufyrirtækin sem við eigum saman eru að skila hagnaði til þjóðarbúsins?“
Ég hef aldrei áður sogast inn í þjóðfélagsumræðu eins og þá sem er í gangi núna um Orkupakka ESB. Reynslan af því er óþægileg. Mín aðkoma að þessu máli er byggð á samfélagslegri ábyrgð, að mér finnst, enda hef ég engar hvatir í þessu máli. Hvorki pólitískar né fjárhagslegar. Ég er bara Íslendingur sem kynnti mér málið og sýnist við vera að fara óhagstæðar leiðir fyrir land og þjóð.
Mótbárurnar gegn mér eru tvær.
1. Þeir sem vilja ólmir koma Íslandi inní ESB, þeir eru harðir á því að þetta sé gott fyrir okkur, enda risa stórt skref fyrir okkur í þá átt.
2. Þeir sem sjá hagsmuni í því að markaðsvæða (einkavæða) orkufyrirtækin. Því það eru hópar fjárfesta hér á landi sem sjá gríðarleg tækifæri í að eignast hluta af þeim „buisness“. Enda hefur umræðan um að selja hluta af Landsvirkjun verið í umræðunni hjá mínum flokki, sjálfsstæðismönnum, í gegnum árin. Geir H. Haarde 2003, Bjarni Ben 2014 ofl. dæmi sanna það.
Ég hef ekki fengið rök með þessum pökkum sem sýna fram á hagsmuni Íslands í þessu. Enda eru þau fá. Neytendavernd, gagnsæi og samkeppni er það helsta sem kemur upp.
En er þjóðin óánægð með að búa við eitt lægsta orkuverð í heimi og að orkufyrirtækin sem við eigum saman eru að skila hagnaði til þjóðarbúsins? Hver er þörfin á breytingu?
Sumir segja að okkur verði kastað út úr EES ef að við samþykkjum þetta ekki. Samt skiptir þetta í raun engu máli af því að það gerist ekkert nema að við tengjumst með sæstreng og það verður aldrei. Þetta er mjög mótsagnakennt og skrítið.
Loks eru það þeir sem hræða okkur með því að segja að við verðum bara að gera þetta, því að annars verður okkur kastað útúr EES samningnum. Er það? Orkumálastjóri ESB hefur sagt það nýlega að þetta skipti okkur engu máli. Það þýðir á mannamáli að þetta skiptir þá ekki máli heldur.
Minn ótti er að hér verði Orkufyrirtæki okkar landsmanna einkavædd. Það er eitthvað sem ég get ekki hugsað mér. Sumt einfaldlega gerir maður ekki til að græða pening og þetta er efst á blaði þar.
Ég er fyrstur manna til að viðurkenna vanþekkingu mína á EES samningum almennt, en ég veit að allir samningar þurfa að vera réttlátir fyrir samningsaðila, annars fer allt í óefni. Staða íslands er mjög sérstök innan EES, við búum við einn orkugjafa (ekki fjölorku úrval) og við erum Eyja sem er ekki tengd Evrópu. Það eru skýr rök fyrir því að okkar málefni verði tekið til skoðunar á vettvangi EES.
Mistökin okkar voru að skrifa undir Orkupakka 1 og 2. Þessi málaflokkur þarf grundvallar endurskoðun okkar sem þjóðar, enda er þetta undirstaða búsetu okkar hér á landi.
Ég vildi óska þess að einhver gæti stigið fram og sýnt mér með óyggjandi hætti að heimilin og fyrirtækin í landinu þyrftu ekki að hafa áhyggjur af því að hér verði fákeppnismarkaður einkaaðila sem munu fara með Orkumál þjóðarinnar í framtíðinni.
Fyrirvarar eru veikir, samkeppnislög eru skýr. Ríkið mun aldrei geta staðið á því að vera í samkeppni við einkaaðila í markaðsvæddu orkuumhverfi. Slíkt mun ekki endast. Gerist það á 5 árum, 10 árum eða 40 árum. Skiptir ekki máli, þessi glufa er stór hættuleg fyrir þjóðina og þá sem hér búa.
Ef það er eitthvað mál sem við höfum staðið frammi fyrir sem ætti að fá okkur til að setjast niður og velta alvarlega vöngum yfir samstarfi okkar við EES, þá eru það þessi mál. Orkumál þjóðarinnar. Ég trúi því samt að það sé hægt að fara í endurskoðun á þessum mistökum okkar og landa betri og tryggari niðurstöðu fyrir Ísland.
Njótiði Páskanna.
https://www.fti.is/2019/04/13/ther-getur-ekki-verid-sama/