• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 15. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Gul viðvörun vegna veðurs – vindhviður allt að 30 m/s

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. júní 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Veðurhorfur á landinu
Suðaustan 5-13 m/s og dálítil væta með köflum, en víða bjartviðri norðanlands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norðaustantil.
Víða austan 8-13 á morgun, en 13-20 m/s syðst á landinu. Bjart með köflum og hiti 14 til 21 stig, en skýjað og heldur svalara um landið austanvert. Fer að rigna sunnantil seint annað kvöld. Spá gerð: 20.06.2020 10:25. Gildir til: 22.06.2020 00:00.
Veðuryfirlit
Um 1300 km S af Reykjanesi er víðáttumikil 985 mb lægð sem fer NA, en frá henni liggur lægðardrag til N. Yfir Grænlandi 1022 mb hæð. Samantekt gerð: 20.06.2020 07:52.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðaustan 5-10 m/s, skýjað með köflum og úrkomulítið. Austan 5-13 og bjart að mestu á morgun. Hiti 10 til 15 stig í dag, en 14 til 19 stig á morgun.
Spá gerð: 20.06.2020 10:38. Gildir til: 22.06.2020 00:00.

Gul viðvörun vegna veðurs: Suðurland og Suðausturland

Gul viðvörun vegna veðurs: Suðurland og Suðausturland

Suðurland
Austan hvassviðri (Gult ástand) – 21 jún. kl. 03:00 – 20:00
Austan 15-20 m/s undir Eyjafjöllum, annars hægari. Búast má við snörpum vindhviðum á þeim slóðum, kringum 30 m/s. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, sérílagi ökutæki með aftanívagna.
Suðausturland
Austan hvassviðri (Gult ástand) – 21 jún. kl. 08:00 – 17:00
Austan 15-20 m/s, en hægari austan Öræfa. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, kringum 30 m/s, einkum í Mýrdal og í Öræfum. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, sérílagi ökutæki með aftanívagna.
Hugleiðingar veðurfræðings
Í nótt byrjaði að rigna um sunnan- og vestanvert landið, en það lítur út fyrir að mesta úrkoman verði gengin yfir um hádegisbil. Áfram þó skýjað að mestu en tiltölulega hlýtt. Einnig verður hvasst með suðurströndinni, 8-15 m/s. Fyrir norðan er útlit fyrir bjartan og hlýjan dag með hita allt að 23 stigum. Austlæg átt á morgun, 3-10 m/s, en 8-15 með suðurströndinni sem og í dag. Skýjað suðaustan og austanlands en bjart með köflum annars staðar. Þá má gera ráð fyrir að hiti verði á bilinu 15 til 20 stig á mörgum stöðum og skríði jafnvel yfir 20 stigin á Bogarfjarðar svæðinu og fyrir norðan.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Austan og síðar sunnan 5-13 m/s og rigning með köflum. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast norðanlands.
Á þriðjudag:
Suðaustan 8-15, en hægari norðvestantil. Rigning sunnan- og vestanlands, en bjart með köflum um landið norðaustanvert. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Minnkandi suðlæg átt. Rigning um landið sunnanvert, en víða léttskýjað fyrir norðan. Hiti 10 til 17 stig.
Á fimmtudag:
Vestlæg átt og víða skúrir. Áfram milt í veðri.
Á föstudag:
Útlit fyrir austlæga eða breytilega átt og dálitlar skúrir. Heldur kólnandi.
Spá gerð: 20.06.2020 08:23. Gildir til: 27.06.2020 12:00.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    170 deilingar
    Share 68 Tweet 43
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Líkfundur

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?