• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 26. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lögreglan varar við innbrotum á höfuðborgarsvæðinu

Svikalogn er orðið yfir íslenskan stöðugleika

Fyrirtækin farin í öruggt skjól

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. júní 2024
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Ör­laga­valdur ís­lenskra heimila

Guðbrandur Einarsson skrifar. Viðreisn

Ég var hluti af íslenskri verkalýðshreyfingu þegar samþykkt var á landsþingi Alþýðusambandsins að upptaka Evru og innganga í Evrópusambandið væri hið eina rétta fyrir íslenskt samfélag. Því miður var þessari ályktun stungið ofan í skúffu.

Nú hafa nýir forystumenn í verkalýðshreyfingunni lýst efasemdum um íslensku krónuna og viljað skoða upptöku annars gjaldmiðils eða í það minnsta að fram fari rannsókn á kostum og göllum íslensku krónunnar samanborið við önnur og stærri gjaldmiðlasvæði.

Endalaus óstöðugleiki

Allt frá því að ég kom inn á íslenskan húsnæðismarkað sem ungur maður fyrir áratugum síðan, hef ég búið við óstöðugleika og þannig hefur það verið hjá öllum öðrum. Vegna þessa óstöðugleika var tekin upp verðtrygging bæði á lánum og launum en það leysti ekki neitt og niðurstaðan varð sú að hætt var að verðtryggja laun en lán héldust áfram verðtryggð og gera enn.

Allar tilraunir til að auka hér stöðugleika hafa mistekist. Vextir hafa verið kýldir niður með handafli og fólki ýmist talin trú um að taka óverðtryggð eða verðtryggð lán. Allt eftir því hvernig vindar hins skoppandi íslenska örgjaldmiðils hafa blásið.

Fyrirtækin farin í öruggt skjól

Þetta ástand er óviðunandi. Enda hafa hundruð fyrirtækja þegar gefist upp á krónunni og flutt sig yfir í annað og stærra myntkerfi. Vegna þess að þau geta það. Almenningur situr hins vegar eftir með Svarta Pétur og getur sig hvergi hreyft.

Svikalogn er orðið yfir íslenskan stöðugleika

Íslenskur stöðugleiki er í mínum huga ekkert annað en svikalogn. Veruleikinn er annað hvort upp eða niður, svartur eða hvítur.

Sagan hefur hins vegar kennt okkur að sá óheyrilegi kostnaður sem fylgir því að ríghalda í íslensku krónuna endar ALLTAF á herðum almennings. Við verðum að fara að bjóða fólki upp á aðrar og raunhæfari lausnir en innantóm loforð.

Það gerir einn flokkur á Alþingi og sá flokkur heitir Viðreisn.+

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Ætlum við líka að hamra á frambjóðendum sem hafa farið inn á strippstaði?“

    Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    83 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Loðnu að finna á stóru svæði

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?