• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ágætis byrjun að skoða braskið og brallið

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. júlí 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Vinsamlega deildu ef þú telur að atvinnurekendur eigi að víkja úr stjórnum lífeyrissjóðanna og vilt vita hvernig 700 milljónum er skotið undan í braski og bralli stjórnenda Icelandair og SA

Forsvarsmenn SA krefja fjármálaeftirlitið að taka til skoðunar þá skoðun stjórnar VR að hún megi hafa skoðun á því í hverju lífeyrissjóðurinn okkar fjárfestir.
Við hljótum þá að gera kröfu á móti og krefja fjármálaeftirlitið að skoða hvort stjórn Icelandair, og hugsanlega stjórnir lífeyrissjóða hafi brotið gegn umboðs og eftirlitsskyldu sinni í málefnum Icelandair.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR flettir ofan af braski og bralli tengdum lífeyrissjóðum

Aðgerðarleysi stjórna lífeyrissjóðanna, sem eru stærstu eigendur Icelandair, er mikið áhyggjuefni og þarfnast nánari skoðunar.
Það væri ágætis byrjun að skoða braskið og brallið í kringum Lindarvatn ehf. (Hótelbyggingu á Landsímareit) sem útskýrir af hverju SA bregðist svo harkalega við gegn því að verkalýðshreyfingin sé að vakna af værum blundi innan stjórnar lífeyrissjóðsins?
Þetta er eitt dæmi af fjölmörgum um tengsl SA við lífeyrissjóðina og fjárfestingar þeirra.
Icelandair group er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóðanna en fyrrum forstjóri fyrirtækisins Björgúlfur Jóhannsson var einnig formaður SA.
Hjá Icelandair störfuðu einnig Halldór Benjamín Þorbergsson og Davíð Þorláksson sem einnig stýrðu Lindarvatni ehf. (félagi sem reisir lúxushótel á Landsímareitnum). Fyrrum stjórnarformaður Lindarvatns var fjármálastjóri Icelandair group, Bogi Nils Bogason núverandi forstjóri Icelandair group.
Í desember 2014 kaupir Dalsnes ehf. Lindarvatn ehf. sem á Landsímareitinn af Pétri Þór Sigurðssyni hrl. á 930 milljónirkr. samkvæmt ársreikningi Dalsnes ehf. fyrir árið 2014. Sem þýðir að 50% hlutur var 465 milljóna króna virði í viðskiptunum.
Átta mánuðum síðar eða í ágúst 2015 kaupir Icelandair 50% hlut í Lindarvatni ehf. á 1.870 milljónir króna ef marka má skráð virði fjárfestingarinnar samkvæmt ársreikningum Icelandair 2015 en kaupverðið var sagt trúnaðarmál á sínum tíma.
Það þýðir að samkvæmt verðmati Icelandair og kaupverði þess hafði virði félagsins fjórfaldast á aðeins 8 mánuðum.
En hvernig getur virði félags aukist svo mikið á svo stuttum tíma? Ein af ástæðum þess var að Icelandair hotels (Sem var í eigu Icelandair group) gerði 25 ára leigusamning um rekstur hins óbyggða hótels. Þ.e. Icelandair eykur verðgildi félagsins gríðarlega með leigusamningi og kaupir svo helminginn í félaginu á fjórföldu verði.
Icelandair bjó þannig til verðmæti með leigusamningnum og keypti svo Lindarvatn á fjórföldu verði.
Af hverju gerði félagið ekki bara leigusamninginn og lét aðra um áhættuna?
Hvað bjó raunverulega að baki?
Allar líku eru á að Icelandair hafi nú þegar tapað 1,87 milljarði króna á fjárfestingunni þar sem framkvæmdakostnaður virðist langt umfram virði og leigusamningur stendur undir. Lífeyrissjóðirnir voru fengnir til að setja 4 milljarða í verkefnið í formi skuldabréfakaupa en sjóðirnir hafa reyndar lýst því yfir að ekki verði settir meiri peningar í verkefnið.
Þannig að milljarðarnir fjórir fóru að mestu í að endurfjármagna skuldir Lindarvatns.
Ljóst er að verkefnið var gríðarlega vanáætlað í tíma og kostnaði og einhverjir hljóta að bera ábyrgð á því.
Hverjir og hvernig er verið að fjármagna framkvæmdina í dag??
Framkvæmdir eru keyrðar áfram til að allt líti út fyrir að vera slétt og fellt og í fullum gangi þó öllum hljóti að vera ljóst að hótelið er langt á eftir áætlun samkvæmt samningum um afhentingu.
Okkur ætti nú að vera ljóst af hverju Lindarvatn var tekið út úr viðskiptunum með Icelandair hotels en fnykurinn af verkefninu hefur greinilega fundist alla leið til Asíu.
Þá má leiða að því líkum að SA menn hafi beitt sér fyrir því að lífeyrissjóðirnir keyptu skuldabréf (lánað) í verkefninu í ljósi þess að kjörin sem í boði voru á þeim tíma voru í engu samræmi við gríðarlega áhættu verkefnisins og þá staðreynd að verkefnið var langt frá því að vera full fjármagnað.
En aftur að SA. Í desember 2016 kippir Björgúlfur (þáverandi forstjóri Icelandair og formaður SA) ábyrgðarmönnum Lindarvatns ehf. og starfmönnum Icelandair group, þeim Halldóri Benjamín og Davíð Þorlákssyni á nýjan starfsvettvang innan SA.
Bogi Nils fer í forstjórastól Icelandair og við formennsku stjórnar Lindarvatns tekur Árni Helgason lögmaður og fyrrum framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og fyrrum formaður Heimdallar.
En hans nafn kemur upp við nánari skoðun á snúningnum sem tekinn var á almenningshlutafélaginu Icelandair í kringum viðskiptin með Lindarvatn, en félag (MB2015 ehf.) í hans eigu fékk greiddar 456 milljónir króna í kringum viðskiptin á árinu 2015, sem hlýtur að teljast væn summa fyrir dagsverkið og í hæsta máta óeðlileg. En samtals fóru um 700 milljónir í einhverjar þóknanir í kringum viðskiptin í gegnum þrjú félög sem virðast vera með mjög takmarkaða starfsemi á þessum tíma.
Það væri nú ráð að skatturinn skoðaði málið líka.
Nú vantar að lágmarki tvo til þrjá milljarða til að klára verkefnið, líklega miklu meira.
Hvaðan eiga þeir peningar að koma?
Mun núverandi forstjóri Icelandair group láta klára framkvæmdina, hvað sem það kostar, á kostnað Icelandair, til að almenningur átti sig ekki á því hvernig eftirlaunasjóðirnir okkar, og fyrirtækin í þeirra eigu, eru misnotuð í braski og bralli atvinnulífsins?
Þannig gæti heildartap Icelandair group af verkefninu étið upp megnið af því sem salan á Icelandair hotels átti að skila inn í reksturinn.
Já þetta eru djöfulsins snillingar eins og segir í frægum áramótasöng.
Það er skiljanlegt að SA vilji halda áfram að hafa lífeyrissjóðina nokkurn veginn útaf fyrir sig svo hægt sé að halda braskinu áfram með peninga og fjármuni launafólks. Í það minnsta án afskipta verkalýðshreyfingarinnar.
https://gamli.frettatiminn.is/lifeyrissjodir-misnotadir-med-skelfilegum-haetti-af-fjarglaeframonnum-atvinnulifsins-aratugum-saman/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?