Snemma í morgun var tilkynnt um vopnað rán í Reykjavík, þar sem tveir aðilar heimtuðu fíkniefni af tveimur öðrum. Urðu einhver átök þeirra á milli sem enduðu með því að annar þeirra sem átti að ræna hlaut stungusár á handlegg. Árásaraðilar voru handteknir og vistaðir í fangageymslu vegna málsins og hinn slasaði fór með sjúkrabifreið á bráðamóttöku.
Tilkynning barst um sofandi aðila á stigagangi fjölbýlishúss og var viðkomandi vísað út í sólskinið.
Tveir aðilar voru stöðvaðir við akstur undir áhrifum áfengis og var annar þeirra einnig án ökuréttinda eftir að hafa verið sviptur þeim.
Við Úlfarsfell var tilkynnt um eld í vinnuvél og náði eldurinn að breiðast út i amk eina bifreið. Leit þetta ekki vel út í fyrstu, þar sem mikill eldur logaði og ásamt því að sprengingar urðu, en slökkvilið náði fljótlega að ráða niðurlögum eldsins. Unnið er að rannsókn á eldsupptökum.
Þá var skömmu fyrir hádegi tilkynnt um yfirstandandi innbrot í Vesturbæ Reykjavíkur. Voru þar á ferðinni tveir aðilar í annarlegu ástandi og dró annar þeirra upp hníf þegar að þeim var komið. Húsráðendur náðu að yfirbuga manninn áður en lögregla kom á vettvang. Báðar boðflennurnar gista nú fangageymslur og verða yfirheyrðir þegar þeir verða skýrsluhæfir.