Samkvæmt bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins, hefur Samkeppniseftirlitið tekið ákvörðun til bráðabirgða vegna sennilegs brots Hreyfils gegn samkeppnislögum nr. 44/2005, með því að banna leigubifreiðastjórum sem keyra fyrir Hreyfil að nýta sér þjónustu annarra leigubifreiðastöðva.
Frá því að Hopp hóf starfsemi hefur Hreyfill komið í veg fyrir að leigubifreiðastjórar sem keyra fyrir Hreyfil nýti sér þjónustu Hopp. Þá útilokuðu einnig reglur í samþykktum og stöðvarreglum Hreyfils félagsmenn frá því að nýta sér aðra þjónustu á markaði, sem þeim stæði til boða.
Í bráðabirgðaákvörðuninni er þeim fyrirmælum beint til Hreyfils að láta af háttsemi sinni gagnvart Hopp án tafar, ásamt því að gera nauðsynlegar breytingar á reglum og samþykktum félagsins sem banna eða hamla því að leigubifreiðastjórar sem keyri fyrir Hreyfil nýti sér jafnframt þjónustu annarra aðila. Þá skuli Hreyfill gefa út formlega tilkynningu til leigubifreiðastjóra sem nýta sér þjónustu félagsins þar sem upplýst er um bráðabirgðaákvörðunina og að leigubifreiðastjórum sé frjálst að nýta sér jafnframt þjónustu annarra aðila kjósi þeir það.
Samkeppniseftirlitið telur að umrædd háttsemi grundvallist hvorki á málefnalegum né hlutlægum forsendum. Háttsemi Hreyfils sé til þess fallin að hindra innkomu nýs keppinautar á markaðinn neytendum til tjóns ásamt því að viðhalda þeim takmörkunum, gagnvart meirihluta leigubifreiðastjóra, sem ný lög um leigubifreiðaakstur áttu að uppræta.
Ítarlegri upplýsingar um málið og ákvörðunina sjálfa má nálgast í meðfylgjandi grein: https://www.samkeppni.is/utgafa/frettir/hreyfli-oheimilt-ad-banna-leigubifreidastjorum-sem-keyra-fyrir-stodina-ad-nyta-ser-thjonustu-annarra-leigubifreidastodva