• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Atvinnuleysisbætur hækki og bótatímabil verði lengt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. ágúst 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Samþykkt miðstjórnar ASÍ um breytingar á atvinnuleysistryggingum og framlengingu hlutabótaleiðarinnar      

Við þær aðstæður sem nú eru á vinnumarkaði er brýnna sem aldrei fyrr að gera umbætur á atvinnuleysistryggingum. Forða þarf fólki sem misst hefur vinnu frá enn verri áföllum en felast í atvinnumissi með því að tryggja afkomuöryggi þess og aðstoða við að komast aftur út á vinnumarkaðinn. Það er gert með því að veita atvinnulausum þjónustu og tækifæri til að styrkja sig og efla hæfni sína og þekkingu og bjóða menntun og þjálfun til nýrra starfa.
Atvinnuþátttaka er mjög há á Íslandi og atvinnuleysi alla jafna lágt. Engu að síður eru atvinnuleysistryggingar hér hærri en víða annars staðar. Þetta afsannar þá lífsseigu kenningu að atvinnuleysistryggingar séu letjandi til atvinnuleitar. Hvergi í heiminum hefur sú aðferð að svelta fólk út af bótum skilað árangri.
Skortur á afkomuöryggi getur haft miklar langtímaafleiðingar fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem er jafnframt mjög dýrkeypt samfélagslega. Tekjufall einstaklinga hefur dómínó-áhrif á hagkerfið í heild sinni og getur leitt til þess að kreppan vegna COVID-19 verður dýpri og langvinnari en ella.

ASÍ leggur til:
  1. Hækkun grunnatvinnuleysisbóta

Hækkun grunnbóta í 95% af dagvinnutekjutryggingu. Bótafjárhæð hækki úr kr. 289.510 í kr. í 318.250, þ.e. um 9,9% frá núverandi fjárhæð.

  1. Tekjutengdar atvinuleysisbætur greiðist í sex mánuði

Tekjutengdar bætur verði greiddar frá fyrsta degi atvinnuleysis og í allt að sex mánuði og að hámark tekjutengingar verði hækkað í kr. 650.000.

  1. Þak tekjutengdra atvinnuleysisbóta lág- og millitekjufólks verði hækkað

Fyrri tekjur upp að dagvinnutekjutryggingu, sem nemur nú kr. 335.000 skerði ekki tekjutengdar atvinnuleysisbætur.

  1. Lenging bótaréttar atvinnuleysistrygginga í 3 ár

Bótatímabil atvinnuleysistrygginga verði lengt úr 30 mánuðum í 36 mánuði.

  1. Fjármagn til vinnumarkaðsaðgerða tryggt í fjármálaáætlun

Fullnægjandi fjármagn verði tryggt í fjármálaáætlun til næstu ára til að halda úti vinnumarkaðsaðgerðum með þjónustu, stuðningi og námstækifærum fyrir atvinnuleitendur.

  1. Lög um atvinnuleysistryggingar endurspegli betur möguleika til þátttöku í virkniúrræðum

Endurskoða þarf lögin um atvinnuleysistryggingar til að mæta betur möguleikum atvinnuleitenda til að nýta náms- og önnur virkniúrræði sem eru í boði.

  1. Framlenging hlutabótaleiðarinnar

Núgildandi hlutabótaleið verði framlengd til 1. júní 2021.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?