• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 22. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Aukinn stuðningur við Bjarkarhlíð vegna mansalsverkefna

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra, Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Bjarkarhlíðar og Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Aukinn stuðningur við Bjarkarhlíð vegna mansalsverkefna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. ágúst 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0
Bjarkarhlíð hefur hlotið 28 milljóna króna styrk til þess að sinna verkefnum tengdum mansali. Samtökin hafa síðastliðin ár haft umsjón með framkvæmdateymi um mansalsmál samkvæmt samkomulagi við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið en í ljósi aukinna verkefna í Bjarkarhlíð og aukinnar áherslu stjórnvalda á aðgerðir gegn mansali var ákveðið að veita Bjarkarhlíð styrk sem gerir samtökunum kleift að ráða starfsmann í fullt stöðugildi í tvö ár til þess að sinna mansalsverkefnum. Umfang slíkra verkefna í Bjarkarhlíð hefur aukist verulega síðustu misseri og gert er ráð fyrir að svo verði áfram.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið veitir Bjarkarhlíð 18 milljónir króna og dómsmálaráðuneytið 10 milljónir króna. Meginhlutverk Bjarkarhlíðar hvað varðar mansmalsmál er að samhæfa störf og fyrstu viðbrögð þeirra aðila sem koma að velferðarþjónustu til þolenda mansals eða þegar grunur er um slíkt. Samkvæmt samkomulaginu verður lögð áhersla á að móta og samræma almennt verklag þegar kemur að þjónustu við þolendur mansals. Einnig verður lögð áhersla á að kynna hlutverk Bjarkarhlíðar varðandi mansalsmál um land allt og auka þekkingu viðeigandi aðila á helstu birtingarmyndum og eðli mansals. Þá verður leitað leiða til þess að reyna að ná betur til þolenda vændismansals.

Við vinnuna fram undan verður horft til athugasemda sem fram komu í síðustu skýrslu GRETA (eftirlitsnefndar Evrópuráðsins með samningi um aðgerðir gegn mansali) um stöðu Íslands.

Tekið á mansalsmálum af festu

„Brýnt er að taka á mansalsmálum með samræmdum hætti og af festu. Styrkurinn til Bjarkarhlíðar skiptir hér miklu máli. Nýleg dæmi sýna hve mikilvægt er að grípa þolendur um leið og mál koma upp og veita þeim viðeigandi þjónustu. Þau sýna líka hversu dýrmæt reynsla hefur byggst upp í Bjarkarhlíð í mansalsmálum síðastliðin ár,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

„Bjarkarhlíð hefur sinnt mikilvægu hlutverki við meðferð mansalsmála undanfarin ár. Dómsmálaráðuneytið hefur með þessu samkomulagi í dag lagt lóð á vogarskálarnar til að Bjarkarhlíð geti áfram sinnt þessu mikilvæga hlutverki og mætt auknum málafjölda.
Hrundið hefur verið af stað vinnu við nýja aðgerðaáætlun til að mæta okkar alþjóðlegu skuldbindingum. Þá hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar aukið samstarf ráðuneyta í málaflokknum. Gott samstarf og samvinnu þarf til í baráttunni gegn mansali. Það er viðvarandi verkefni hverrar þjóðar að berjast gegn mansali og mikilvægt að sofna ekki á verðinum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra.

“Á síðasta tímabili mansalsverkefnis í Bjarkarhlíð komu upp 78 mál þar sem grunur var um mansal og komu þolendur frá 12 mismunandi löndum. Mansalsteymi Bjarkarhlíðar hefur haft það hlutverk að kalla saman viðbragðsaðila sem starfa í þágu þolenda í þverfaglegu samstarfi við þær stofnanir sem þurfa að koma að málum. Mikil þekking hefur skapast innan mansalsteymisins undanfarin misseri og hefur það haft veg og vanda að því að efla traust á milli stofnana og einstaklinga sem starfa í málaflokknum.
Með þessu framlagi munum við ná enn betri árangri í að vinna að heildstæðri nálgun og úrræðum sem verða sérsniðin að þolendum mansals ásamt því að vinna að stefnumótun í þessum mikilvæga málaflokki,“ segir Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar.

Samkvæmt þriðju úttektarskýrslu GRETA sem birt var í fyrra voru íslensk stjórnvöld meðal annars hvött til að þróa frekar og styrkja aðstoð til þolenda mansals. Samningurinn við Bjarkarhlíð er liður í því. Bjarkarhlíð er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, dómsmálaráðuneytis, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    148 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • Líkamsárás í Úlfarsárdal

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fjársvik: Selur mörgum sama gáminn sem ekki er til

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?