• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 24. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Arnar Már Elíasson skipaður forstjóri Byggðastofnunar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. september 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur skipað Arnar Má Elíasson forstjóra Byggðastofnunar til næstu fimm ára.

Arnar Már var valinn úr hópi margra hæfra umsækjenda að fengnum tillögum frá ráðgefandi hæfnisnefnd og stjórn Byggðastofnunar sbr. 5. gr. laga nr. 106/1999 um Byggðastofnun. Skipan í embættið tók gildi 16. september. Arnar Már lauk B.A.-prófi í hagfræði frá Winthrop University í USA og meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Arnar Már hefur starfað við fjármál og lánastarfsemi frá árinu 2004 hjá SPRON, Íslandsbanka og síðar Byggðastofnun.

Frá 1. febrúar á þessu ári hefur Arnar Már verið starfandi forstjóri Byggðastofnunar en var áður forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar og staðgengill forstjóra frá árinu 2016. Arnar Már leiddi m.a. vinnu við mikilvægt samkomulag Byggðastofnunar við European Investment Fund (EIF) um innleiðingu á COSME ábyrgðakerfi. Við þá vinnu fór fram heildarendurskoðun á lánaflokkum stofnunarinnar og veigamiklar breytingar gerðar á eldri flokkum og nýir stofnaðir. Með breytingunum jókst eftirspurn í lánveitingar Byggðastofnunar og efldi þar með aðgengi landsbyggðanna að lánsfé.

Byggðastofnun er staðsett á Sauðárkróki. Forstjóri Byggðastofnunar ber ábyrgð á rekstri stofnunarinnar, þjónustu og árangri. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir eru látnir eftir bruna í fjölbýlishúsi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Lögreglan leitar manns

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    158 deilingar
    Share 63 Tweet 40
  • Þorsteinn Már Baldvinsson hættir sem forstjóri Samherja

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?