Við sjáum heflaðan kvið, pumpaða upphandleggi og strimlaða lærvöðva á skjánum

Ofurhetjur eins og Deadpool, Úlfagaurinn, Mauramaðurinn, Witcher, Súpermann, Leðurblökumaðurinn og þrumuguðinn Þór.
Jake Gyllenhaal buffar sig í drasl til að feta í fótspor Patricks heitins Swayze í Road House.
Jason Momoa er ekki aðeins helmassaður Vatnsmaður heldur einnig íturvaxinn Khal Drogo í Game of Thrones.
Chris Hemsworth er þrumuguðinn Thor í öllu sínu veldi með svo stóra bakvöðva að hann þarf að labba á hlið inn um dyrnar.
Zac Efron spígsporaði strendur Kaliforníu vopnaður flotholti í Baywatch og ekki nanógramm af líkamsfitu á vöðvuðum skrokk.

Við erum mötuð á skilaboðum um líkamlegar umbreytingar á örfáum mánuðum eins og það sé jafn eðlilegur partur af prógrammet og að lesa handritið eða láta sparsla smettið.
Jútjúb og tímaritasíður á netinu úsa út smellumellum fyrir æfingaprógrammið, snæðingana og allar pillurnar og duftin hjá þessum stjörnum og látið líta út eins og þetta sé ínáanlegt ef þú bara fylgir þessu uppá punkt og prik.
Og stóreygir ungir drengir með óþroskaðan framheila telja sig geta náð þessum árangri með kjúklingi, kreatíni og krulla bíseppinn nógu mikið.
Þeir þróa með sér algjörlega brenglaðar hugmyndir og óraunhæfar væntingar um líkamlegar breytingar og upplifa vonbrigði, skömm, vonleysi yfir eigin árangri sem gerist á eðlilegum hraða sem fyrir þeim er hraði jökulsins því viðmiðin eru algjörlega úr takti við hvað er raunhæft og eðlilegt.
Því það er aðeins hálf sagan sögð þegar kemur að þessum dramatísku líkamlegu breytingum.

Til að undirbúa sig undir þessi hlutverk þarf leikarinn að æfa eins og skepna í marga klukkutíma á dag, borða sjö ríkismatvæli svo mánuðum skiptir, passa hvert einasta gramm sem fer upp í túlann, sleppa áfengi, gosi, sósum, og flestu sem veitir gleði í munnholinu og tileinka sér sjálfsaga á pari við níræðan tælenskan munk.
Síðan þurrka þeir upp líkamann með að sötra örfáa dropa af vatni eða sjúga ísmola fyrir atriði þar sem efri parturinn er klæðalaus svo allir músklarnir þrýstist út í húðina.
Hugh Jackman drakk ekki dropa af vökva í 36 tíma fyrir atriði í Wolverine.
Henry Cavill gerði slíkt hið sama fyrir sitt hlutverk í Witcher, og sagði í viðtali að hann hefði verið svo þyrstur að hann gat fundið lykt af vatni í sama herbergi.
Það tekur líkamann 100 klukkutíma að fara í lífshættulegt ofþornunarástand.
Það tekur líkamann 100 klukkutíma að fara í lífshættulegt ofþornunarástand.
Og stærsti böggullinn sem fylgir skammrifinu er að rannsóknir sýna að þessar helmössuðu og fitusnauðu svokölluðu fyrirmyndir fyrir unga drengi geta haft mjög neikvæð áhrif á þeirra líkamsímynd.
Þeir eiga á hættu að þróa með sér líkamsskynjunarröskun (body dysmorphia) sem kallast Vöðvafíkn (muscle dysmorphia), undirflokkur líkamsskynjunarröskunar og leggst aðallega á unga drengi.
Vöðvafíkn lýsir sér í að finnast hann aldrei nógu vöðvastælt(ur), með neikvæðar hugsanir um eigið útlit og byggja sjálfstraustið á hversu mikið kjöt liggur á grindinni.
Vöðvafíkn lýsir sér í að finnast hann aldrei nógu vöðvastælt(ur), með neikvæðar hugsanir um eigið útlit og byggja sjálfstraustið á hversu mikið kjöt liggur á grindinni.
Afleiðingarnar eru óheilbrigt og öfgakennt samband við spegilmyndina, mat og æfingar, ofnotkun á bætiefnum og jafnvel ólöglegum efnum í sprautuformi.
Hvað veldur vöðvafíkn er ekki fyllielga ljóst, en ytri áhrif spila þar stóra rullu eins og að lenda í einelti vegna útlits, sem og áhrif kvikmynda, fjölmiðla og samfélagsmiðla að hafa tálgaðar útúrbuffaðar Hollívúdd stjörnur stöðugt fyrir glyrnunum.
1.7-2.4 % þjást af líkamsskynjunarröskun og af þeim eru 22% karlmanna sem þjást af vöðvafíkn, og er orðin mun algengari síðasta áratug.
1.7-2.4 % þjást af líkamsskynjunarröskun og af þeim eru 22% karlmanna sem þjást af vöðvafíkn, og er orðin mun algengari síðasta áratug.
Afleiðingarnar af þessum öfgakenndu aðferðum við að æfa eins og skepna og tutla svo eins og spörfugl til að sýna kjötbygginguna eru bæði líkamlegar og sálrænar.
Þekktar afleiðingar af því að borða langt undir orkuþörf er að hjartsláttur hægist, hjartavöðvi minnkar, blóðþrýstingur lækkar, gríðarleg þreyta, orkuleysi, svimi, hárlos, brotnar neglur, svefnleysi, hátt kortisól svo eitthvað sé nefnt.
Sálrænar afleiðingar eru félagsleg einangrun, þunglyndi, kvíði, æfingaþráhyggja. Óánægja með líkamann og stöðugar hugsanir um mat grjótfestast í sálinni til margra ára og krefst oft faglegrar aðstoðar. Þráhyggja gagnvart mat fylgir fólki oft alla ævi, löngu eftir að megrunarkúrum lýkur, og jafnvel þó fituprósenta sé aftur komin í eðlilegt horf og líkaminn í heilbrigðum holdum.
Ein þekktasta rannsókn á afleiðingum af drastískri megrun er Keys frá 1950 þar sem heilbrigðir hermenn voru látnir borða helming hitaeininga sem þeir voru vanir.
Menn sem áður spáðu ekkert í mat fóru að lesa uppskriftabækur spjaldanna á milli, töluðu um mat, dreymdi mat og sumir fóru að vinna sem kokkar eða í eldhúsi.
Einn þátttakandi var að fela mat uppi á háalofti og borða þar í laumi langt fram á elliárin. Mörgum áratugum eftir að rannsókninni lauk.
Matthew McConaughey sagði í viðtali við Joe Rogan að hann hafi aldrei almennilega jafnað sig líkamlega né andlega eftir fitutapið fyrir Dallas Buyers Club, þar sem hann skóf af sér alla fitu og hellings vöðvamassa en þar lék hann HIV smitaðan mann.

Hann lýsti mataræðinu sem samanstóð af Tapioca búðing á morgnana, fiski og grænmeti í hádegi og á kvöldin. Um það bil 1000-1200 hitaeiningar fyrir mann sem var næstum 100 kíló massakall áður en þessi horun á holdi hófst.
Við þurfum ekki aðeins að vernda ungu stúlkurnar okkar fyrir óraunhæfum viðmiðum um útlit.
Við þurfum ekki aðeins að vernda ungu stúlkurnar okkar fyrir óraunhæfum viðmiðum um útlit.
Drengirnir okkar eru líka í hættu.
Sýnum þeim allskonar líkama snemma á lífsleiðinni, eins og fjölbreytileika í stærð og vöðvamassa þeirra sem keppa á ÓL.
Fræðum þá um hætturnar bakvið að æfa of mikið og borða of lítið.
Hömrum á þeim að sjálfsmyndin byggist ekki á hvernig þeir líta út heldur á innvolsinu þeirra hvernig þeir koma fram við aðra, sýna samkennd, kímnigáfu og eru til staðar fyrir vini sína.

Hvetjum þá til að útvista ekki samþykkinu útávið til annarra, heldur hvetjum þá til að hrósa sjálfum sér og vera stoltir af afrekum sínum.
Umræða