Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út um miðnætti vegna slyss um borð í grænlenskum togara sem staddur var um 160 sjómílur vestur af landinu.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu um að skipverji um borð í skipinu væri með áverka á hendi eftir að hafa klemmst og var áhöfnin á TF-GRO kölluð út. Skipið hélt nær landi og um klukkan tvö í nótt var TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar komin að skipinu og fóru hífingar fram á stefni skipsins.
Sigmanni var slakað um borð í togarann og skömmu síðar var skipverjinn hífður um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli á fjórða tímanum í nótt þar sem sjúkrabíll beið og flutti hinn slasaða á Landspítalann.
Discussion about this post