• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sjóvá refsar FÍB fyrir gagnrýni – 5 milljarða greiðslur til hluthafa

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Sjóvá rifti samningi við FÍB-aðstoð aðeins nokkrum vikum eftir að FÍB gagnrýndi tryggingafélagið fyrir milljarða króna greiðslur til hluthafa. FÍB-aðstoð hefur annast Vegaaðstoð Sjóvár síðan 2007 og engan skugga borið á þau viðskipti. Engar skýringar fylgdu fyrirvaralausri uppsögninni að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá FÍB.

Ekki er hægt að álykta annað en að stjórnendur Sjóvár hafi sagt viðskiptunum upp til að refsa FÍB fyrir gagnrýni á 5 milljarða króna greiðslur til hluthafa tryggingafélagsins. Uppsögnin barst í lok október, aðeins fjórum vikum eftir að FÍB birti áskorun til Sjóvár um að skila ofteknum iðgjöldum til viðskiptavina frekar en láta þau renna í vasa hluthafa.

Sjóvá greiddi fasta upphæð mánaðarlega til FÍB-aðstoðar fyrir að sjá um Vegaaðstoð fyrir félaga í Stofni. Samningurinn var hagkvæmur fyrir báða aðila, Sjóvá þurfti ekki að reka sína eigin vegaaðstoð, greiðslan fyrir þjónustu FÍB-aðstoðar létti undir fastakostnaði og munaði um hana í þeim rekstri. FÍBaðstoð er í boði fyrir félagsmenn í FÍB, sem eru rúmlega 18 þúsund talsins.

FÍB er stærsta neytendafélag landsins og gætir hagsmuna bíleigenda. FÍB hefur í áratugi gagnrýnt óeðlilega há iðgjöld ökutækjatrygginga og samkeppnisskort á tryggingamarkaðnum. Þessi gagnrýni hefur ekki truflað samstarfið um vegaaðstoðina, enda óskyld verkefni. Afar gott samstarf hefur verið við starfsfólk Sjóvár um þessa þjónustu.

Tímasetning uppsagnarinnar sýnir ofurviðkvæmni stjórnenda Sjóvár fyrir heilbrigðu aðhaldi hagsmunasamtaka neytenda. Hvernig staðið var að uppsögninni staðfestir þá ályktun FÍB. Í samningnum eru ákvæði um að aðilar hans skuli leitast við að ná samkomulagi ef þörf krefur. Ekkert slíkt var reynt af hálfu Sjóvár, aðeins einföld uppsögn á almennt netfang FÍB.

Um þetta snerust aðfinnslur FÍB

Í áskorun FÍB til Sjóvár 29. september sl. sagði m.a.: „Sjóvá hefur kynnt áform um að greiða hluthöfum 2,5 milljarða króna í tengslum við hlutafjárlækkun félagsins. Þessi fjárhæð kemur til viðbótar við 2,65 milljarða króna arðgreiðslu ársins. Samtals ætlar Sjóvá því að greiða hluthöfum rúmlega 5 milljarða króna. Ástæðu greiðslunnar til hluthafa segir Sjóvá vera þá að geta félagsins til að greiða tjón sé „fyrir ofan efri mörk viðmiða.“ Það er vægt til orða tekið. Sjóvá liggur á gríðarlegum fjármunum sem félagið hefur sankað að sér með ofteknum iðgjöldum, ekki síst af bílatryggingum. Hluthafar Sjóvá eiga ekki þessi „efri mörk viðmiða“, heldur tryggingatakar. Með réttu á Sjóvá að skila þessum 2,5 milljörðum króna til viðskiptavina sinna. FÍB skorar á stjórn Sjóvá að leggja til við hluthafafund félagsins að hlutafjárlækkunin gangi til viðskiptavina.“

Stjórn Sjóvár, undir formennsku Björgólfs Jóhannssonar, varð ekki við áskorun FÍB. Á 10 mínútna löngum hluthafafundi Sjóvár 19. október síðastliðinn var samþykkt að greiða hluthöfum félagsins 2,5 milljarða króna til að „laga fjármagnsskipan félagsins“ eins og sagði í fundargerðinni. Á mæltu máli þýddi þetta orðalag að Sjóvá hafði safnað mun meiri fjármunum í sjóði sína en þurfti til að standa undir tryggingastarfseminni. FÍB taldi aftur á móti eðlilegra að skila þessum ofteknu fjármunum til viðskiptavina félagsins.

Lífeyrissjóðir launafólks eiga 48,3% hlutafjár í Sjóvá. Það skýtur óneitanlega skökku við að stjórnendur fyrirtækis í eigu almennings hafi ekki þrek til að þola gagnrýni.

Umræða
Share55Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?