Þrumur og eldingar hafa verið á Höfuðborgarsvæðinu undanfarnar klukkustundir með tilheyrandi úrkomu, þá er einnig Gul viðvörun vegna veðurs fyrir: Strandir og norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi og Miðhálendið. Hér er myndband sem tekið var áðan af þrumveðirinu.
Veðurhorfur á landinu
Sunnan 10-18 m/s en 5-13 suðaustan og austantil. Allvíða skúrir en þurrt norðaustanlands. Mun hægari snemma í fyrramálið en vaxandi austanátt og rigning um hádegi, fyrst suðaustanlands en norðlægari á vestanveðru landinu. Sunnan 18-25 m/s austantil á landinu síðdegis á morgun og rigning en 13-18 vestantil annað kvöld. Hiti 2 til 10 stig.
Spá gerð: 21.02.2019 18:34. Gildir til: 23.02.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Sunnan 13-20 m/s og rigning, mikil suðaustantil. Snýst í suðvestan 15-23 m/s síðdegis með slyddu eða jafnvel snjókomu en þurrt að kalla norðaustanlands. Kólnar í veðri og hiti um og undir frostmarki um kvöldið.
Á sunnudag:
Sunnan og suðaustan 8-15 m/s. Skýjað með köflum en fer að rigna sunnan og vestantil eftir hádegi en áfram þurrt norðaustanlands. Hlýnar aftur og hiti víða 1 til 6 stig.
Á mánudag:
Suðaustlæg átt, 8-15, skýjað með köflum og úrkomulítið. Suðlægari vindátt, þykknar upp og fer að rigna sunnanlands um kvöldið. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir hvassa suðvestanátt og skúri eða slydduél en bjartviðri norðan jökla. Kólnar í veðri.
Á miðvikudag:
Snýst í norðlæga átt og þykknar upp með éljum norðantil en léttir til sunnan heiða og frystir um allt land.
Spá gerð: 21.02.2019 08:24. Gildir til: 28.02.2019 12:00.