• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 11. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Neyðarkall frá togskipi sem statt var 5 sjómílum vestur af Hafnarfirði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. mars 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 13:33 í dag, 21. mars, neyðarkall frá togskipi sem statt var 5 sjómílum vestur af Hafnarfirði vegna mikils leka í vélarrúmi.
Landhelgisgæslan boðaði strax út þyrlu, sjóbjörgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum, sem og varðbátinn Baldur sem staddur var á Stakksfirði, björgunarbáta af varðskipinu Þór sem statt var í Helguvík, og nærliggjandi skip og báta. 15 mínútum síðar tilkynnti áhöfn togskipsins TFRX/Dagur að svo virtist sem þeir höfðu náð stjórn á lekanum.
En björgunareiningar voru látnar halda áfram viðbragði, meðal annars að fara með öflugar sjódælur áleiðis til skipsins. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á vettvang um kl. 14:00. Í framhaldi af því komu harðbotna björgunarbátar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar einn af öðrum ásamt björgunarbát af varðskipinu Þór. Um kl. 14:30 var búið að dæla sjó úr vélarrúmi togskipsins og voru þá sumar björgunareiningarnar afturkallaðar, þar á meðal björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
Harðbotna björgunarbátum var haldið til öryggis áfram við skipið, en varðbáturinn Baldur kom á svæðið og tók við vettvangsstjórn. Dráttarbáturinn Hamar frá Hafnarfirði, kom á svæðið um svipað leyti og var ákveðið að hann tæki togskipið í tog og héldi með það áleiðis til Hafnarfjarðar. Um 14:40 var skipið kom í tog og lagður af stað til Hafnarfjarðar, áætlað er að skipið komi til hafnar um 16:00. Í áhöfn togskipsins eru 5 menn og heilsast þeim öllum vel. Björgunarbátar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og varðskipsins Þórs fylgja skipunum áleiðis til hafnar í öryggisskyni.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Vitni óskast að banaslysi

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Umferðaróhapp – vegi lokað

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Húsnæðiskaup: Vaxta- og afborgunarlaus lán frá ríkinu

    60 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Fjórir látnir á Tenerife – alda hreif með sér hóp fólks

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?