• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hvassviðri eða stormur allt að 35 m/s- Gult ástand

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
21. júní 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)

21 jún. kl. 13:30 – 20:00 – Hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s með vindhviðum allt að 35 m/s. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll á norðanverðu Snæfellsnesi. Varasamt fyrir ökutæki sem og ekkert ferðaveður fyrir hjólhýsi eða húsbíla. Víðar á vesturlandi gera vindstrengir einnig verið hvassir.
Gul viðvörun  vegna veðurs: Breiðafjörður

Veðuryfirlit
350 km V af Snæfellsnesi er vaxandi 998 mb lægð á leið NA. Um 800 km S af Dyrhólaey er 1025 mb hæðarhryggur sem þokast A.

Veðurhorfur á landinu
Sunnan 10-15 m/s og rigningu, en hvassara í vindstrengjum á Vesturlandi. Hægari vindur og þurrt norðaustan- og austanlands fram á kvöld. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi. Vestan og síðar norðvestan 5-13 m/s á morgun. Víða dálítil rigning, súld eða léttar skúrir, en styttir upp að mestu suðvestantil síðdegis. Hiti 6 til 12 stig, en allt að 15 stig á Suðausturlandi.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðvestan 5-10 m/s og dálítil væta, en sunnan 10-15 og rigning um hádegi. Suðvestan 3-8 og súld í nótt, en snýst í hæga norðlæga átt og syttir upp seinnipartinn á morgun. Hiti 7 til 10 stig.
Spá gerð: 21.06.2021 09:45. Gildir til: 23.06.2021 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Norðan og norðvestan 3-10, hvassast austast. Bjart með köflum, en skýjað og úrkomulítið norðaustantil. Hiti frá 6 stigum á Norðausturlandi, upp í 16 stig suðvestanlands.

Á fimmtudag:
Suðvestan 3-10 og léttskýjað, en skýjað með köflum vestanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Austurlandi.

Á föstudag:
Suðvestanátt, víða 10-15 m/s. Rigning eða súld í flestum landshlutum, en léttir til um landið norðaustanvert með deginum. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi en svalast með vesturströndinni.

Á laugardag:
Vestan 8-15 m/s og skýjað að mestu en bjartara yfir suðaustanlands. Dálítil væta á vestanverðu landinu og hiti 8 til 13 stig, en úrkomulítið austantil og hiti að 20 stigum.

Á sunnudag:
Útlit fyrir hæga suðvestlæga átt með björtu og hlýju veðri norðanlands en skýjað um sunnanvert landið.
Spá gerð: 21.06.2021 09:06. Gildir til: 28.06.2021 12:00.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    82 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?